,,Borgarstjórinn má þó eiga það að hann kann að spila á kerfið …og ríkisstjórnin fylgir með í kaupbæti.“
Kerfisræðið er að verða allsráðandi á Íslandi. Ég hef talað um þetta í nokkur ár. Samt hefði ég ekki trúað því að þetta myndi gerast eins hratt og við sjáum nú. Eftirfarandi kom í ljós í dag:
1. Formaður Sjálfstæðisflokksins samþykkti að ríkið fjármagni kosningaloforð Samfylkingarinnar í Reykjavík. Án þess að ríkisstjórnin svo mikið sem ræddi það við þjóðþingið, hvað þá minnihlutann í borginni.
2. Refsigjöld verða lögð á fólk fyrir að aka um vegi höfuðborgarsvæðisins, vegina sem það er þegar búið að borga með ofteknum sköttum og gjöldum.
3. Í ofanálag er ríkið að fara að reka opinbert fasteignafélag og selja verðmætasta byggingarland Íslands til að fjármagna áform meirihlutans í Reykjavík.
Þessu var öllu var haldið leyndu frá þinginu, ráðherra neitaði að mæta á nefndarfund eða sýna samningsdrögin. Ráðherrar virðast auk þess ekki geta svarað því hvað borgarlína er eða hvernig staðið verði að gjaldtökunni. Málið var svo bara kynnt með glærusýningu frá auglýsingastofu.
Borgarstjórinn má þó eiga það að hann kann að spila á kerfið …og ríkisstjórnin fylgir með í kaupbæti.“ Segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson á vef sínum.