-2.2 C
Reykjavik
Sunnudagur - 26. mars 2023
Auglýsing

Yfirborðskenndum pólitískum rétttrúnaðarkenningum hafnað

Auglýsingspot_img
Auglýsing

Nýjar fréttir

Auglýsing

,,Fólk er löngu hætt að hugsa við en í stað farið að hugsa ég“

Stórsigur Boris og breska íhaldsflokksins hefur svo miklu útbreiddari þýðingu en bara fyrir Bretland og Evrópusambandið. Þetta eru pólitísk vatnaskil þar sem fólkið, venjulega fólkið, hafnar öllum þeim yfirborðskenndu pólitísku rétthugsunarkenningum sem tröllriðið hafa hinu vestræna samfélagi undanfarinn áratug. Það er nefnilega svo merkilegt að eftir því sem háværar frekjuraddir kváðu harðar að með sínar „réttu“ skoðanir þeim mun sjálfhverfari varð heimurinn. Náungakærleikur og samkennd eru á miklu undanhaldi og fólk er löngu hætt að hugsa við en í stað farið að hugsa ég.

Guðmundur Franklín Jónsson skrifaði þennan áhugaverða pistil á vef sinn eftir kosningarnar í Bretlandi

Þessu harðneitar að sjálfsögðu vinstri hliðin en við þurfum ekki að líta langt til að sjá dæmi um þetta. Hér áður fyrr tíðkaðist að karlmenn opnuðu dyr fyrir kvenfólki en sá siður hefur að mestu liðið undir lok því nú geta þeir orðið fyrir hörðum ávítum ef þeir svo mikið sem dirfast að sýna hjálparhönd af þessu tagi. Börnin hafa svo ekki farið varhuga að þessu en þeim er hent á milli stofnana því foreldrarnir hafa ekki tíma eða jafnvel áhuga á að sinna þeim og þunglyndi meðal ungmenna hækkar staðfastlega. Hvað er svo fengið með þessu annað en óhamingja? Nákvæmlega ekki neitt.
Ég er nefnilega með kenningu um hvers vegna svo auðvelt hefur reynst að selja allar þessar rétthugsunarkenningar sem eru ekkert nema orð á blaði og hún er sú að fólk gengur um með bullandi samviskubit. Það stekkur því á hverja hugmyndina á fætur annarri sem lætur því líða örlítið betur með sjálf sig og auðvitað er það skiljanlegt. Það er ekki þar með sagt að það sé rétt en þannig rennur aukin skattheimta vegna loftslagsvár á hinu græna Íslandi ljúflega ofan í kokið á fólkinu okkar. Ekki vegna þess að það er endilega sammála þessari nálgun heldur vegna þess að þau eru með samviskubit.
Ég las eitt sinn bók eftir Martha Stout sem er með doktorsgráðu í sálfræði og ber bókin heitið ‘The sociopath next door“ eða Siðblindinginn við hliðina á þér og kemur sú bók inn á siðblindu og hvað það í raun er. Hún segir að uppáhalds tæki siðblindingjans til að stjórna öðrum er samviskubit. Hann finnur sjálfur ekki fyrir því en verður fljótt sérfræðingur í að nota það gegn venjulegu fólki og ég tel ráðamenn nota þessa aðferð í allt of miklum mæli en í nótt þá hafnaði fólkið þessu. Það sagði hingað og ekki lengra. Nú hættið þið að segja okkur að gera eitt á meðan þið gerið annað. Nei, takk við þessari kúgun. Já, takk við einstaklingsfrelsi og mannkærleik. Við ætlum að elska okkur sjálf og elska aðra og við ætlum að breyta samfélaginu til hins betra.
Ég hef nefnilega trú á því að samkenndin eigi eftir að koma aftur og í raun hef ég sett mér það markmið að leggja mitt af mörkum svo af því verði. Það er nefnilega yndislegt að búa í samfélagi sem fólkið hjálpast að og styður hvort annað og þangað vil ég fara aftur.
https://www.facebook.com/notes/gu%C3%B0mundur-frankl%C3%ADn/yfirbor%C3%B0skenndum-p%C3%B3lit%C3%ADskum-r%C3%A9tttr%C3%BAna%C3%B0arkenningum-hafna%C3%B0/161371098581359/
https://frettatiminn.is/2019/12/13/rikisstjornin-leynir-thjodina-upplysingum-um-solu-a-opinberum-eignum-sem-seldar-voru-a-slikk/