• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 10. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Konur taka af skarið á Ísafirði

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
15. febrúar 2019
in Aðsent & greinar, Ferðaþjónusta
A A
0

                        Drífa Snædal, skrifar

Pistillinn að þessu sinni er ritaður á Ísafirði þar sem námskeiðið „Konur taka af skarið“ er haldið en þar kenni ég allt sem vert er að vita um verkalýðsfélög og baráttu þeirra auk þess sem ég hvet konur til þátttöku. Námskeiðið sem er að frumkvæði Akureyrarakademíunnar var haldið í haust á Akureyri en á morgun er komið að Reykjavík. Selfoss tekur svo við 1. mars, Egilsstaðir 2. mars og Borgarnes 3. mars.
              Drífa Snædal, skrifar

Eftir að hafa gert það sem er skemmtilegast í heimi, að ræða verkalýðsmál við áhugasamt fólk vonast ég til að ná að kíkja á Byggðasafn Vestfjarða á sýninguna Ég var aldrei barn þar sem stéttabarátta fyrri ára er rakin.
Áhugi á verkalýsbaráttu birtist annars í ýmsum myndum þessa dagana. Þannig mun Listasafn ASÍ opna sýningu Hildigunnar Birgisdóttur, Universal Sugar, á morgun bæði í Garðabæ og í Vestmannaeyjum. Fræðslumál og listir hafa alltaf verið órofa hluti af verkalýðsbaráttunni enda snar þáttur í lífsgæðum fólks.
Vikan hefur annars einkennst af viðræðum við stjórnvöld og óteljandi önnur samtöl, formleg og óformleg um hvernig hægt er að ná sem bestum kjarabótum í viðræðunum sem nú standa yfir. Næsta vika ber vonandi í skauti sér skýrari mynd af stöðunni og hvers er að vænta bæði frá stjórnvöldum og atvinnurekendum. Fólk er auðvitað orðið óþolinmótt og það er vel skiljanlegt, ferlið hefur tekið lengri tíma en ætlunin var en vonandi verður útkoman þeim mun betri og heildarmyndin fyllri.
Af öðrum verkefnum á skrifstofu ASÍ má nefna undirbúningur er í fullum gangi vegna Norrænnar ráðstefnu í tilefni aldarafmælis Alþjóða vinnumálastofnunarinnar (ILO). Í byrjun apríl má vænta stórskotaliðs frá alþjóða verkalýðshreyfingunni og Norrænum stjórnmálum á þá ráðstefnu til að ræða framtíð vinnumarkaðarins. Fólk sem hefur áhuga á alþjóðlegri verkalýðsbaráttu ætti ekki að láta þennan viðburð fram hjá sér fara. Hægt er að skrá sig hér.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    223 deilingar
    Share 89 Tweet 56
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    56 deilingar
    Share 22 Tweet 14
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    32 deilingar
    Share 13 Tweet 8
  • Héraðssak­sókn­ari, rík­is­sak­sókn­ari ofl. segi af sér

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • „Lille Danmark“ planar styrjöld …

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?