Mótmælt fyrir utan Tryggingastofnun í dag, næstu mótmæli verða við Landsbankann þar sem að krafist verður að laun bankastjórans verði lækkuð
Hópur mótmælenda var fyrir utan skrifstofur Tryggingastofnunar við Laugaveginn í hádeginu í dag, föstudag, og mótmæltu að stofnunin hefði ekki skilað þeim öryrkjum, sem fengu skertar bætur vegna búsetu, peningunum sem þeir eiga inni hjá stofnuninni. Gul vesti og gulir litir voru áberandi meðal mótmælenda og á eftir skildu þeir eftir sig gul spor fyrir utan Tryggingastofnun.
,,SKILIÐ PENINGUNUM SEM ÞIÐ TÓKUÐ AF ÖRYRKJUM
Tryggingastofnun ríkisins skerti lífeyri hjá öryrkjum vegna búsetu utan Íslands í meira en tíu ár þrátt fyrir ábendingar um að það væri ólöglegt. Umboðsmaður Alþingis tók undir umkvartanir öryrkja og loks úrskurðaði velferðarráðuneytið að skerðingin hafi verið ólöglega og að Tryggingastofnun ætti að greiða fólkinu fullan lífeyri.
En ekkert hefur gerst. Þrátt fyrir að fólkið sem mátti þola skerðinguna sé meðal fátækasta fólki á landinu og hafi allra síst efni á að lána ríkissjóði peninga hefur ekkert af öryrkjunum fengið greitt það sem tekið var af þeim, ekki krónu.
Við mótmælum því að endalaust sé troðið á þeim sem standa veikast í þessu samfélagi. Við tökum undir kröfur öryrkja: Skilið peningunum sem þið tókuð!“
Þess má geta að Fréttatíminn fékk eftirfarandi yfirlýsingu frá skrifstofu forstjóra Tryggingastofnunar: Vegna endurskoðunar á búsetuútreikningi örorkulífeyrisþega. Eins og komið hefur fram opinberlega hefur Tryggingastofnun verið að vinna að úrlausn málsins með félagsmálaráðuneytinu. Stofnunin hefur sent félagsmálaráðuneytinu aðgerðaáætlun vegna málsins og er ekkert að vanbúnaði að hefjast handa þegar fjárheimildir liggja fyrir. Breytt framkvæmd verður kynnt á heimasíðu stofnunarinnar.
Hádegismótmæli nr. 2 verða fyrir utan Landsbankann í Austurstræti: LÆKKIÐ LAUN BANKASTJÓRANS
,,Boðað er til annara hádegismótmælanna við höfuðstöðvar Landsbankans kl. 12:10 mánudaginn 18. febrúar.
Bankaráð Landsbankans, sem er í eigu almennings, hækkaði laun bandastjórans um 80% svo nú hefur hún laun á við ellefu bankagjaldkera. Sjálftaka elítunnar er óþolandi, vaxandi misskipting í samfélaginu er óþolandi, það er óþolandi að fámennur hópur geti skammtað sér há laun á sama tíma og aðrir fá svo lág laun að þau duga ekki fyrir framfærslu út mánuðinn.
Sýnum samstöðu og mætum til hádegismótmæla við Landsbankann við Austurstræti 11, mótmælum ákvörðun bankaráðs og krefjumst þess að laun bankastjórans verði lækkuð aftur. Lækkið laun bankastjórans!
Fylgist með, brátt verður boðað til hádegismótmæla nr. 3“ Segir á vef Gulvestunga
Tengt efni:
https://www.fti.is/2019/02/11/bankarad-landsbankans-segir-45-6-milljona-arslaun-vera-i-samraemi-vid-starfskjarastefnu-bankans/