indó tryggir sér fjármögnun og fær leyfi til að hefja starfsemi
Seðlabanki Íslands veitti í dag indó leyfi til að starfa sem sparisjóður. indó tryggði sér tæplega 600 milljóna króna fjármögnun síðastliðið haust og var það hluti af lokaskrefunum til að fá tryggja samþykki á starfsleyfisumsókn indó.
,,Þetta er búið að vera með eindæmum skemmtilegt og gefandi ferðalag undanfarin 3 ár og ef horft er til baka var það í raun galin hugmynd að láta sér detta í hug að stofan nýjan banka frá grunni. Ég að rifna úr stolti yfir teyminu sem hefur unnið hörðum höndum að því að komast á þennan stað og ég bý við þau einstöku forréttindi að vinna með hópi fólks sem hvert um sig er í heimsklassa á sínu sviði, að öðrum kosti hefðum við aldrei komist þangað sem við erum komin í dag.” segir Haukur Skúlason, framkvæmdastjóri indó.
Nú taka við nokkrir mánuðir þar sem indó mun leggja lokahönd á samþættingu sinna tölvukerfa við kerfisinnviði Seðlabankans, að því loknu mun sparisjóðurinn veita öllum landsmönnum aðgang að þjónustu sinni.
,,Fram að þeim tíma munum við bjóða aðilum sem hafa skráð sig á póstlista okkar að prufukeyra appið og hjálpa okkur við að gera það að meiriháttar upplifun. Við hvetjum alla að skrá sig á póstlistann okkar, http://www.indo.is/skramig, þar munum við vera í samskiptum við verðandi viðskiptavini og eins bjóða þeim í heimsókn til okkar, þegar samkomutakmarkanir leyfa.” segir Haukur að lokum.
Um indó:
indó er fyrsti áskorendabankinn á Íslandi en áskorendabankar hafa orðið gríðarlega vinsælir erlendis á síðustu árum. Til að byrja með mun indó eingöngu að bjóða upp á debetkortareikning en með tímanum verður bætt við vöruframboðið í samstarfi við þriðju aðila. Nánari upplýsingar um indó má finna á heimasíðunni, www.indo.is.