Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, Jens Stoltenberg, varar við því að Rússar séu að að herða sóknina í Úkraínu.
Varnarmálaráðherrar Atlantshafsbandalagsins funda í Brussel um hernaðaraðstoð við Úkraínumenn. Í ávarpi fyrir fundinn í morgun sagði Stoltenberg að rússnesk stjórnvöld væru að fjölga hermönnum í Úkraínu um þúsundir og sætti sig við mikið mannfall til að geta aukið pressuna á Úkraínumenn.