6.8 C
Reykjavik
Föstudagur - 31. mars 2023
Auglýsing

Verkfall hefst klukkan tólf í dag

Auglýsingspot_img
Auglýsing

Nýjar fréttir

Auglýsing

Verkafólk hjá Samskipum, Berjaya Hotels, Skeljungi, Edition og Olíudreifingu hefur samþykkt verkfall sem mun hefjast klukkan 12 á hádegi í dag, miðvikudaginn 15. febrúar. Á þeim tímapunkti munu þau leggja niður störf og halda áfram í verkfalli þangað til því hefur verið aflýst af félaginu.

Klukkan 12 á hádegi boðar Efling til baráttu- og upplýsingafundar í Hörpu (Austurbakka 2, 101 Reykjavík). Komið verður saman í salnum Norðurljós.

Á þessum fundi getur fólk sem lagt hefur niður störf staðfest þátttöku sína í verkfallinu, skráning vegna verkfallsstyrkja fer fram á staðnum og lifandi tónlist verður spiluð, haldnar verða ræður, matur og drykkur verða í boði og upplýsingar gefnar um hvernig er hægt að taka þátt í verkfallsvörslu. Viðburðurinn stendur til klukkan 16 í dag.