• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 13. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Tíu verkefni fá alls 130 milljónir króna í styrk af byggðaáætlun

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
15. febrúar 2024
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, hefur úthlutað styrkjum að upphæð 130 milljónum króna til tíu verkefna á vegum sjö landshlutasamtaka sveitarfélaga. Styrkjunum er ætlað að efla byggðir landsins og er úthlutað til sértækra verkefna á sóknaráætlanasvæðum í samræmi við stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2022-2036 (aðgerð C.1). Alls bárust 18 umsóknir um styrki að fjárhæð rúmar 371 m.kr. fyrir árið 2024.

Markmiðið með framlögunum er að tengja sóknaráætlanir landshluta við byggðaáætlun og færa heimafólki aukna ábyrgð á ráðstöfun fjármuna. Áhersla er lögð á að styrkja svæði þar sem er langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf. Verkefni sem hljóta styrk skulu nýtast einstökum svæðum eða byggðarlögum innan landshlutans, eða landshlutanum í heild. Íbúaþróun, samsetning atvinnulífs og atvinnustig og meðaltekjur var meðal þess sem lagt var til grundvallar við mat á umsóknum.

Þriggja manna valnefnd fór yfir umsóknir og gerði tillögur til ráðherra. Verkefnin sem hljóta styrk eru:

  • Hjartað í Húnaþingi vestra – tæknismiðja til að hvetja nýsköpun og auka fjölbreytni í atvinnulífi. Uppsetning tæknimiðstöðvar í anda FabLab smiðja í samfélagsmiðstöð í félagsheimilinu á Hvammstanga. Koma á upp aðstöðu til nýsköpunar, viðgerða og þróunar fyrir íbúa, sem og aðstöðu fyrir félagsstarf. Fyrirmynd sótt til Finnlands og Borgundarhólms. Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hljóta styrk að upphæð kr. 10.500.000.
  • Samvinnurými. Skapa á samvinnurými á Skagaströnd með því að standsetja og markaðssetja húsnæði í eigu sveitarfélagsins, skapa forsendur fyrir léttan iðnað í hluta hússins og aðstöðu fyrir frumkvöðla og minni fyrirtæki í öðrum hluta þess. Húsið var áður fiskvinnsluhús. Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hljóta styrk að upphæð kr. 15.000.000.
  • Kuklið – frumkvöðlasetur matvæla. Breyta og standsetja hluta gamals fiskvinnsluhúss sem Galdur Brugghús nýtir einnig. Með Kuklinu verður boðið upp á matvælaframleiðslu með aðgengi að framleiðslurými og klasamyndun. Atvinnuástand á Hólmavík er afar slæmt m.a. eftir lokun rækjuvinnslunnar Hólmadrangs. Kuklið er í eigu einkaaðila. Fjórðungssamband Vesfirðinga hlýtur styrk að upphæð kr. 15.000.000.
  • Samfélagsmiðstöð á Bakkafirði – nýtt hlutverk skólans sem vinnu- og samverurými. Búa á til klasasetur í hluta skólahúsnæðis og auka þjónustu við heimamenn. Sköpuð verður aðstaða til fjölbreyttrar atvinnustarfsemi, efla fjarnám og gefa samastað fyrir samkomur og viðburði. Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra hljóta styrk að upphæð kr. 12.500.000.
  • Tilraunagróðurhús. Nýta á glatvarma frá gagnaveri Borealis á Blönduósi, reisa tilraunagróðurhús og veita frumkvöðlum aðgengi til að prófa og þróa vöru og gera svæðið þannig eftirsóknarvert fyrir matarfrumkvöðla. Orka einnig tryggð með sólarrafhlöðum. Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hljóta styrk að upphæð kr. 15.000.000.
  • Stuðningur við uppbyggingu, þróun og markaðssetningu á Reykjanesi. Öflug verkefnavinna til stuðnings við samfélög og atvinnulíf á Suðurnesjum vegna eldsumbrota á Reykjanesi. Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum hlýtur styrk að upphæð kr. 17.000.000.
  • Lýsistankarnir á Raufarhöfn. Gera á lýsistankana á Raufarhöfn manngenga og mögulega til notkunar fyrir kvikmyndagerð, tónleika og menningarviðburði. Tankarnir eru sagðir einstakir og hafa sögulegt gildi. Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra hljóta styrk að upphæð kr. 15.000.000.
  • Fjölmenning og inngildingaráætlanir á Suðurlandi. Verkefnið er framhald verkefnisins Aðgerðaáætlun um sjálfbæra lýðfræðilega þróun miðsvæðis Suðurlands sem hlaut styrk úr C.1 árið 2022. Með þessu verkefni á að efla jákvæða byggðaþróun með jafningjafræðslu og valdeflingu sveitarfélaga, með handleiðslu við mótun stefnu og aðgerða hvað varðar nýja íbúa. Samtök sunnlenskra sveitarfélaga hljóta styrk að upphæð kr. 10.000.000.
  • Samkomuhúsið Breiðablik – íbúa- og gestastofa á Snæfellsnesi. Uppbygging á starfsemi íbúa- og gestastofu Snæfellsness og efling á hlutverki félagsheimilisins Breiðabliks sem samfélags- og nýsköpunarmiðstöðvar á sunnanverðu Snæfellsnesi. Bæði sem félagsmiðstöð, gestastofa og nýsköpunarmiðstöð. Ráða á verkefnisstjóra og gera endurbætur á eldhúsi. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi hljóta styrk að upphæð kr. 10.000.000.
  • Sjávarföll. Vinna með vörur sem byggja á íslenskum matarhefðum og nýrri framleiðslu. Markaðsgreining, auka samstarf, vöruþróun, nýsköpun og þekkingaryfirfærslu. Samband sveitarfélaga á Austurlandi hlýtur styrk að upphæð kr. 10.000.000.

Í valnefndinni sitja þau Elín Gróa Karlsdóttir, fjármálastjóri hjá Ferðamálastofu, Sigurður Árnason, sérfræðingur hjá Byggðastofnun, sem jafnframt er formaður og Snorri Björn Sigurðsson fyrrverandi forstöðumaður þróunarsviðs Byggðastofnunar. Með valnefnd starfar Sigríður K. Þorgrímsdóttir, sérfræðingur hjá Byggðastofnun. Skipun valnefndar og mat umsókna voru í samræmi við reglur um úthlutun innviðaráðherra á framlögum sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2036. Byggðastofnun annast umsýslu verkefnastyrkjanna.

  • Aðgerðir byggðaáætlunar 2022-2036
  • Tíu verkefni fá alls 130 milljónir króna í styrk af byggðaáætlun - mynd úr myndasafni númer 1
Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Látinn eftir stórfellda líkamsárás

    91 deilingar
    Share 36 Tweet 23
  • Sigurður Fannar í héraðsdómi – réð dóttur sinni bana

    44 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • SOS frá Landssambandi lögreglumanna – Ekki litið á lögreglumenn sem opinbera starfsmenn!

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Vestmannaeyjabær stefnir Vinnslustöðinni – Bótakrafa upp á um tvo milljarða króna

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Landsréttur staðfestir 18 ára dóm yfir konu sem myrti barn sitt

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?