Kæru vinir.
Ég er þakklátur og auðmjúkur yfir þeim mikla stuðningi sem ég hef fundið fyrir síðustu daga og vikur. Og að ná góðu kjöri sem formaður VR er ómetanlegt veganesti fyrir þá miklu vinnu sem framundan er. Ég mun leggja mig allan fram í þeirri vinnu.
Ég vil koma á framfæri þakklæti til allra þeirra fjölmörgu sjálfboðaliða sem buðu sig fram til að draga vagninn með mér í kosningabaráttunni. Ómetanlegt!! Og öllum þeim sem mig dyggilega studdu og kusu.
Ég vil einnig þakka öðrum frambjóðendum fyrir hressilega og góða kosningabaráttu og sérstaklega fyrir að sýna þessu mikilvægi starfi sem við vinnum í VR áhuga. Ég óska um leið nýkjörnu stjórnarfólki innilega til hamingju með kjörið og þeim sem ekki náðu í gegn, að þessu sinni, að halda áfram og reyna aftur. Það er algjörlega þess virði því starfið er í senn skemmtilegt og gefandi þó það geti verið afar krefjandi á köflum.
Nú bíða okkar risastór verkefni framundan og er ég ekki í nokkrum vafa um að stjórn VR og hreyfingin öll snúi bökunum þétt saman og klári þau þannig að sómi sé af. Með hagsmuni okkar allra að leiðarljósi.
Að lokum vil ég þakka kosningastjóranum mínum, sem hefur staðið með mér í gegnum súrt og sætt í verkalýðsbaráttunni, haldið mér á floti þegar á þarf að halda, og unnið með mér stærstu sigrana. Stýrt af ótrúlegri eljusemi og heilindum, kosningabaráttu minni í þeim kosningum sem ég hef gengið í gegnum síðustu ár. Og ég held að ef einhverjum dettur í hug að bjóða sig fram í eitthvað að þá er engin betri svo það sé sagt. En þetta er auðvitað eiginkona mín Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir ofurkona.
Bestu kveðjur og endalaust þakklæti.
Ragnar Þór – Formaður VR