• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 13. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Veitingastaðurinn Nauthóll – Ánægjuleg upplifun og framúrskarandi fagmennska

Veitingastaðurinn Nauthóll – Ánægjuleg upplifun og framúrskarandi fagmennska

Fyrsta flokks hráefni - Framúrskarandi eldhús

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
15. mars 2024
in Afþreying, Ferðaþjónusta, Fréttir, Innlent, Neytendur
A A
0

Veitingastaðurinn Nauthóll er mjög notalegur og snyrtilegur staður þar sem boðið er upp á fyrsta flokks mat á fjölbreyttum matseðli. 

Fréttatíminn heimsótti veitingahúsið Nauthól sem er mjög vel staðsett veitingahús við eitt helsta útivistarsvæði borgarinnar, við Nauthólsvík. Staðsetning er einstök og umhverfið fallegt, bæði að kvöldi sem degi. Þegar inn var komið, var tekið einstaklega vel á móti okkur og það fyrsta sem vakti athygli var hversu góð og afslöppuð stemming var á staðnum. Setið var á vel búnum borðum í salnum og það var farið að rökkva úti.

Þjónustan var einstaklega góð og lipur, við höfðum sama þjóninn allt kvöldið sem var hafsjór af fróðleik um allt það sem var á mat og vínseðlinum. Þegar hann var spurður um það sem við vildum fræðast um, þá kom vel í ljós að þar var á ferð fagmaður fram í fingurgóma. Við ákváðum í kjölfarið að treysta honum algerlega fyrir að leiða okkur í gegnum val á því sem boðið var upp á og við sáum ekki eftir því þar sem leiðsögnin var fullkomin.

Enda voru forrétturinn, aðalrétturinn og eftirrétturinn alveg dásamlegir og við mælum eindregið með að fólk upplifi að fara út að borða á Nauthóli, því fagmennskan í matreiðslu, hráefni og þjónustu er fyrsta flokks.

Heimasíðan Nauthóll.is er með allar upplýsingar um alla þá rétti og þjónustu sem boðið er upp á og þar er jafnframt hægt að panta borð. Þá er hægt að skoða myndir af öllum þeim glæsilega mat sem boðið er upp á hjá veitingahúsinu á Instagram og Facebook

Fyrsta flokks hráefni – Framúrskarandi eldhús

Í kynningu á veitingastaðnum er áréttað að unnið sé með fyrsta flokks hráefni ofl.

,,Metnaður okkar liggur í fersku, fjölbreyttu og vönduðu hráefni og allur matur er lagaður frá grunni. Við erum meðvituð um umhverfisvernd og sjálfbærni.

Veitingastaðurinn Nauthóll nýtur sérstöðu sem fáir veitingastaðir á höfuðborgarsvæðinu geta státað af en hann býr að frábærri staðsetningu í nágrenni við helstu útivistarperlur höfuðborgarsvæðisins, Nauthólsvík og Öskjuhlíð. Þeirri nálægð fylgir ósjálfrátt einhver bjartur heilnæmur og fallegur andi og við leggjum sérstaka áherlsu á létt og notalegt andrúmsloft á staðnum.

Við gerum okkur grein fyrir þeirri ábyrgð sem lögð er á herðar okkar þar sem við erum staðsett í nánd við eitt helsta útivistarsvæði borgarinnar. Í Nauthólsvík er hægt að upplifa tengsl við náttúruna og sækja hreyfingu, hollan og góðan mat, menningu til að næra andann og síðast en ekki síst eiga góðar samverustundir með vinum og fjölskyldu.“

Hér að neðan má sjá nokkrar af fjölmörgum myndum af því sem Veitingastaðurinn Nauthóll býður gestum sínum upp á:

 

Umræða
Share2Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    43 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Kanada lifir sníkjulífi á Ameríku & Carney wefur örlög þjóðarinnar …

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • 48 dagar verði felldir niður – 20% hærra verð fyrir krókafisk

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    20 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Verr farið með Ísland en Namibíu – Kvótakerfið til Mannréttindadómstólsins

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?