• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 14. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Fjármálaeftirlitið krefst þess að síðunni hluthafi.com verði lokað

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
15. apríl 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

Fjármálaeftirlitið hóf í gær athugun á hlutafjárútboði sem auglýst er á vefsíðunni hluthafi.com. Á síðunni kemur fram að óskað sé eftir hlutafjárloforði a.m.k. tíu til tuttugu þúsund hluthafa í þeim tilgangi að endurreisa flugfélagið WOW eða stofna nýtt lággjaldaflugfélag.

Höfuðstöðvar Fjármálaeftirlitsins við Suðurlandsbraut.

Fjármálaeftirlitið taldi að framangreind áskriftarsöfnun félli undir hugtakið almennt útboð verðbréfa, sbr. 43. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007, en með almennu útboði er átt við hvers konar boð til almennings um kaup á verðbréfum. Áður en farið er í almennt útboð verðbréfa þarf að gefa út lýsingu í samræmi við 1. mgr. 44. gr. laga um verðbréfaviðskipti.
Fyrr í dag sendi Fjármálaeftirlitið erindi til forsvarsmanna hluthafi.com þar sem gerð var krafa um að heimasíðunni yrði lokað þar sem ekki virtust uppfyllt skilyrði laga um verðbréfaviðskipti, m.a. varðandi útgáfu lýsingar. Í kjölfar þessa hafa forsvarsmenn hluthafi.com breytt fyrirkomulagi áskriftarsöfnunarinnar á þann hátt að nú er miðað við skráningu fyrir hlutaskírteini í einkahlutafélagi sem fellur ekki undir lög um verðbréfaviðskipti.
Fjármálaeftirlitið vekur athygli á að almennir fjárfestar njóta ekki sömu verndar vegna kaupa í einkahlutafélagi og þegar þeir taka þátt í almennu hlutafjárútboði.
(PDF skjal) Yfirlysing-FME-vegna-hluthafi.com-15.4.2019

Síðan í gær, hefur auka upplýsingum verið bætt inn á síðuna:
,,Af einhverjum ástæðum, þá hafa fjölmiðlar óskað eftir að upplýst verði hverjir standi á bak við Hluthafi.com.
​Eins og fram hefur komið:

Hollvinir almennrar samkeppni.

Við erum einstaklingar, sem sjá að rekstur lággjaldaflugfélags í eigu íslendinga er raunhæfur kostur og viljum að landsmenn taki sig saman til að endurreisa Wow air eða stofna nýtt lággjaldafélag, sem er eitt brýnasta hagsmunamál þjóðarinnar í dag.​

Þeir einstaklingar sem standa að gerð þessarar síðu og væntanlegs hlutafélags hafa ekki starfað hjá Wow air og eru ekki tengdir félaginu á nokkurn hátt.

Þessir aðilar eru kostaðir af Sólhús ehf. Kt. 411003-3450.

Umsjónamaður þessarar síðu er Friðrik Atli Guðmundsson.

Forsvarsmenn Hluthafi.com og Sólhúsa ehf. eru ekki og ætla ekki að vera opinberar persónur, viljum við að almenningur og fjölmiðlar virði okkar friðhelgi og þau réttindi sem því fylgir.

Við vonumst til að ráða talsmann en þangað til verða fréttir birtar reglulega á síðunni Hluthafi.com“

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    147 deilingar
    Share 59 Tweet 37
  • 48 dagar verði felldir niður – 20% hærra verð fyrir krókafisk

    39 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Brot um 500 ökumanna mynduð

    14 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    41 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    93 deilingar
    Share 37 Tweet 23
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?