Ætti að vera búið að reka Kristján Þór Júlíusson fyrir löngu síðan
Guðmundur Franklín Jónsson kom víða við eins og fyrri daginn í vikulegum pistli sínum sem var fróðlegur að vanda. Hann talaði um að rétt væri að veita einum og hálfum milljarði til auglýsingastofa á Íslandi. Hann bendir á að það sé í besta falli heimskulegt að nota svona mikið fé í miðjum heimsfaraldri, þegar enginn er að plana ferðalög. Þá sé það sorglegt að í miðju atvinnuleysi og kreppu á Íslandi, sé verið að styðja auglýsingastofu í öðru landi sem sé jafnframt undir rannsókn.
Þá talaði Guðmundur Franklín um RÚV og fagnar því að stofnunin hafi breytt um skoðun varðandi umfjöllun um forsetaframboð og ætlunin sé að fara eftir lögum um RÚV. Áður hefur hann vakið athygli á að RÚV hafi aldrei talað við sig eða sagt fréttir af framboðinu.
Ætti að vera búið að reka Kristján Þór Júlíusson fyrir löngu síðan
,,Kristján Þór Júlíusson er að vinna níðingsverk og það ætti að vera löngu búið að reka hann úr embætti því hann er bara leppur ákveðinna manna og hann byrjaði sinn feril á því að svíkja Vestfirðinga. Það ætti að reka hann úr Sjálfstæðisflokknum“ Segir Guðmundur Franklín og bætir við að hann hafi talað við marga sjómenn sem eru að missa aleiguna vegna þess að Kristján Þór Júlíusson hefði kvótasett grásleppuna fyrirvaralaust og eigendur báta væru að missa húsnæði sitt og lífsviðurværi vegna þessa.
Leggja á niður Bankasýslu ríkisins
Vextir hafa lækkað hjá Seðlabankanum, viðskiptabankarnir hafa ekki lækkað vextina og um er að ræða ríkisbanka sem þjóðin á. Þegar kerfið virkar ekki og bankarnir lækka ekki vexti eins og Seðlabankinn hefur verið að gera, þá sé bara eitt í stöðunni og það sé að leggja niður Bankasýslu ríkisins og færa bankamálin beint undir forsætisráðherra sem gæti þá haft stjórn á þessum málum.
https://www.facebook.com/gundifranklin/videos/679970992546891/