Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur lýst yfir óvissustigi vegna jarðskjálftahrinu á Reykjanesskaga.
Í tilkynningu frá Almannavörnum segir:
„Aukin jarðskjálftavirkni hefur verið síðustu vikurnar og hafa skjálftar yfir 4 mælst um helgina“.
„Íbúar eru hvattir til þess að huga að lausa- og innanstokksmunum sem geta fallið við jarðskjálfta og huga sérstaklega að því að ekki geti fallið lausamunir á fólk í svefni. Veðurstofa Íslands hefur einnig vakið athygli á því að grjóthrun og skriður geti farið af stað í brattlendi og því er gott að sýna aðgát við brattar hlíðar“ segir í tilkynningu frá Almannavörnum.
Hverju breytir óvissustig?
Óvissustig þýðir í raun að að aukið eftirlit er haft með atburðarás sem gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar verði ógnað.
Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Almannavarna, segir óvissustigi aðalleg lýst yfir til upplýsinga fyrir almenning sem og viðbragðsaðila. „En eins og vísindamenn hafa sagt að þá er nær ómögulegt að spá um eldgos í virku eldgosakerfi. Það gæti orðið á morgun eða eftir áratugi“.
https://gamli.frettatiminn.is/14/05/2022/gaeti-verid-undanfari-eldgoss/