• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 16. nóvember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ísland í efsta sæti á réttindakorti trans fólks í Evrópu og í öðru sæti á Regnbogakorti ILGA

Ísland í efsta sæti á réttindakorti trans fólks í Evrópu og í öðru sæti á Regnbogakorti ILGA

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
15. maí 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0

Ísland tekur stökk á Regnbogakorti Evrópusamtaka hinsegin fólks (ILGA Europe) og er nú í öðru sæti en niðurstöðurnar voru kynntar í dag á árlegum samráðsfundi IDAHOT+ FORUM (International Day Against Homophobia and Transphobia) sem haldin er í Haag í Hollandi í ár.

Evrópusamtök hinsegin fólks birta árlega Regnbogakort í kringum alþjóðlegan baráttudag hinsegin fólks sem er 17. maí. Kortið sýnir á myndrænan hátt stöðu og réttindi hinsegin fólks í 49 ríkjum Evrópu. Réttindakort trans fólks í Evrópu (Trans Rights Map 2024) sýnir á sama hátt stöðu trans fólks og þar er Ísland í efsta sæti eins og í fyrra.

Frá 2018 hefur Ísland farið upp um 16 sæti á Regnbogakortinu en það ár var Ísland í 18. sæti. Nú er Ísland eins og áður sagði komið upp í annað sæti en í fyrsta sæti er Malta, en á eftir Íslandi kemur Belgía, þá Spánn og Danmörk.

Frá því að síðasta Regnbogakort var birt í maí 2023, þar sem Ísland var í 5. sæti, hefur Alþingi samþykkt lög sem banna bælingameðferðir en einnig fær Ísland nú stig fyrir atriði sem tengjast hegningarlagaákvæðum um hatursglæpi og lagaákvæðum um réttindi trans fólks.

Fyrsta aðgerðaráætlun um stefnu stjórnvalda í málaflokknum var samþykkt á Alþingi 2022. Framgangur verkefna aðgerðaráætlunarinnar er birtur á mælaborði sem nýlega hefur verið uppfært. Þar sést að góður gangur er á verkefnum og flest þeirra er annaðhvort hafin eða komin vel á veg.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Niðurstaða um hvarf Geirfinns Einarssonar?

    ,,Morðinginn er enn á lífi og það er vitað hver hann er“

    78 deilingar
    Share 31 Tweet 20
  • Var Eggert myrtur? – Dularfullt andlát

    43 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Nýtt flugfélag í Keflavík

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Egill greiddi 17.776 krónur fyrir klukkustund í bílastæðagjald

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • ,,Það er búið að ákveða ofurskatta á bílaumferð í borginni“ segir heimildarmaður í innsta hring

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?