Inga Sæland, formaður flokks fólksins, spurði dómsmálaráðherra um hversu margir einstaklingar, sem hefur verið synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi, hafa ekki yfirgefið landið í kjölfarið og ekki er vitað hvar þeir eru staddir hér á landi?
Svör dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Ingu Sæland um framkvæmd brottvísana voru þessi:
Samkvæmt upplýsingum frá ríkislögreglustjóra eru 169 einstaklingar, sem áður voru umsækjendur um alþjóðlega vernd og komnir með verkbeiðni hjá embættinu um flutning úr landi, skráðir í lögreglukerfinu LÖKE í stöðunni ,,finnst ekki“.
Það þýðir að þeir hafa ekki fundist þegar kom að flutningi úr landi þrátt fyrir að ítrekað hafi verið reynt að ná í þá. Ekki er vitað hvar þeir eru staddir, þ.e. hvort þeir séu hér á landi eða erlendis. Þessi tölfræði tekur mið af fjölda verkbeiðna sem hafa borist embættinu frá árinu 2019.
Umræða