Í gær sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson ekki skilja andstöðu Sjálfstæðisflokksins við því að fá sérfræðihóp til þess að skoða málefni er snúa að innleiðingu þriðja orkupakkans. Á meðan að á umræðu um hann á Alþingi, hefur staðið, þar sem að Miðflokkurinn hefur haldið uppi öflugri málsvörn gegn innleiðingu hans. Hafa komið fram ýmis atriði sem að ekki lágu fyrir áður, eins og t.d. álit margra lögmanna og m.a.s. héraðsdómara á Íslandi að þeir fyrirvarar sem að settir hafa verið, haldi ekki gagnvart Evrópudómstólnum. Jafnframt hefur komið fram að Noregur hefur ekki fengið staðfestingu um að þeirra fyrirvarar muni halda, hjá ESB.
Margt fleira þarf að skoða faglega af þar til bæru fólki áður en að anað er lengra í fljótfærni og framkvæmd gjörninga sem að ekki er hægt að snúa til baka, að mati Miðflokksins.
„Mér skilst að einhver þingmaður eða þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafi ekki getað sætt sig við tillögu um að skipaður yrði fimm manna sérfræðihópur til að skoða ýmis álitamál vegna orkupakkans í sumar. Ætlunin var að skipa fimm manna sérfræðihóp með aðkomu allra þingflokka. Þingflokksformaður sjálfstæðismanna hefur sagt að einhverjir í hans hópi velti því fyrir sér hvort ástæða sé til að fjalla aftur um það sem utanríkismálanefnd hafi þegar tekið fyrir. Um það vil ég segja að frá því að síðan þá hefur ótal margt komið upp sem full ástæða er til að skoða.” Sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins um stöðuna sem að upp kom þegar að skyndilega var fallið var frá samkomulagi Miðflokksins og stjórnarflokkanna um þinglok.
Skýringin sem að sett var fram vegna þessarar óvæntu uppákomu var sú að einhverjir þingmenn Sjálfstæðisflokksins sögðust ekki hafa viljað fallast á samkomulagið vegna þess að þeir treystu ekki Miðflokknum. Um þetta sagði Sigmundur Davíð „Þetta er svo kölluð eftiráskýring og það er svo sem ekkert launungarmál að við treystum ekki þingflokki sjálfstæðisflokksins í orkupakkamálinu. Það var hins vegar ríkisstjórnin sem vildi hafa samkomulagið skriflegt og við féllumst á það enda aldrei hvarflað annað að okkur en að standa við samkomulag sem við gerum hvort sem það er munnlegt eða skrifleg. Þegar var svo búið að undirrita skriflegt samkomulag létu einhverjir þingmenn draga það til baka. Það er auðvitað ekki traustvekjandi.“
https://gamli.frettatiminn.is/2019/06/13/islendingar-hafna-thridja-orkupakkanum/