Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú alvarlega líkamsárás sem átti sér stað nú í morgun í Reykjavík. Maður var handtekinn á vettvangi grunaður um að hafa veitt konu áverka með hnífi á heimili hennar.
Konan var flutt á slysadeild og maðurinn eins og áður segir handtekinn. Nokkur viðbúnaður var hjá lögreglu vegna málsins enda óljóst í upphafi hvort fleiri væru inni á heimilinu. Ekki er hægt að veita nánari upplýsingar um málið að svo stöddu.
Umræða