„Varðhundar valdsins“ sannarlega enn til staðar
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir hefur formlega sagt af sér sem formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis. Hún segir meirihlutann hafa dregið persónu sína sífellt í svaðið og notað hana sem blóraböggul. Tilkynnti Þórhildur Sunna afsögnina á Alþingi nú fyrir skömmu.
Hún sakar meirihluta nefndarinnar um að standa í vegi fyrir athugun á hæfi Kristjáns Þórs vegna Samherjamálsins og gagnrýndi jafnframt Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra, fyrir að telja þá niðurstöðu að frumkvæðisathugun hafi verið sett á ís vera í góðu lagi.
Hún sagði jafnframt, meirihlutann sífellt hafa dregið persónu sína í svaðið og að „varðhundar valdsins“ væru sannarlega enn til staðar og henni væri vægast sagt misboðið.
„Þessi aðferðafræði, að skjóta sendiboðann, er þaulreynd þöggunar- og kúgunartaktík. Ég mótmæli þessari aðför, mér misbýður þetta leikrit og ég ætla ekki að taka þátt í því lengur. Meirihlutinn verður að finna sér aðrar átyllur til þess að réttlæta aðför sína að eftirlitshlutverki nefndarinnar,“ sagði Þórhildur „Formennsku minni í þessari nefnd er hér með lokið.“