• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 7. desember 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
Áskrift
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Væntanlega þurrt um allt land þann 17.júní

by Ritstjórn
15. júní 2020
in Fréttir, Innlent
0
Deila á FacebookDeila á X
Hugleiðingar veðurfræðings

Í dag er útlit fyrir sunnanátt á bilinu 5-13 m/s. Víðfemt skilakerfi fer yfir landið frá vestri til austurs með tilheyrandi rigningu og súld. Mest verður vætan sunnanlands, en þó áttin sé suðlæg mun einnig rigna af og til á Norður- og Austurlandi sem er gott fyrir gróðurinn á þeim slóðum. Á vestasta hluta landsins verða skilin farin yfir kringum hádegi og handan skilanna taka við smávegis skúrir. Seinnipartinn í dag og í kvöld dregur einnig úr vætunni í öðrum landshlutum.
Á morgun tekur við suðvestanátt, allvíða 5-10 m/s. Búast má við dálitlum skúrum í flestum landshlutum, líklega hangir hann þó þurr á Suðausturlandi og Austfjörðum. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast norðaustantil á landinu í dag, en suðaustanlands á morgun.
Á miðvikudag (þjóðhátíðardaginn) er síðan hæg suðlæg átt í kortunum, 3-8 m/s. Væntanlega verður þurrt um allt land. Norðanlands verður víða bjart veður, en meira af skýjum á himni á sunnanverðu landinu, þó eflaust sjáist til sólar á milli skýjanna. Þokuloft gæti sett strik í reikninginn og er þokan líklegust til að láta á sér kræla með austurströndinni.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Sunnan 3-8 m/s og rigning eða súld en suðvestlægari og smáskúrir seinnipartinn og á morgun. Hiti 8 til 11 stig.
Veðurhorfur á landinu
Sunnan 5-13 m/s og rigning, einkum sunnanlands. Dregur úr vætu eftir hádegi, fyrst vestast á landinu.
Suðvestlæg eða breytileg átt 3-10 á morgun. Víða dálitlir skúrir, en þurrt að kalla á Suðausturlandi og Austfjörðum.
Hiti 8 til 17 stig, hlýjast norðaustantil á landinu í dag, en um landið austanvert á morgun.
Spá gerð: 15.06.2020 09:48. Gildir til: 17.06.2020 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á miðvikudag (lýðveldisdagurinn):
Suðlæg átt 3-8 m/s. Skýjað sunnan- og vestanlands og hiti 10 til 14 stig, en léttskýjað á Norðausturlandi með hita 13 til 18 stig.
Á fimmtudag:
Suðaustan 5-10 á sunnanverðu landinu og skýjað, en úrkomulítið. Hægari vindur norðanlands og bjartviðri. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast fyrir norðan.
Á föstudag:
Hægt vaxandi suðaustanátt og skýjað fer að rigna síðdegis, en bjart norðantil á landinu. Úrkomumeira sunnan- og vestanlands um kvöldið. Hiti breytist lítið.
Á laugardag (sumarsólstöður) og sunnudag:
Austanátt og rigning með köflum. Milt í veðri.
Spá gerð: 15.06.2020 08:33. Gildir til: 22.06.2020 12:00.
 

Umræða
  • NÝ ÖKUSKÍRTEINI

    NÝ ÖKUSKÍRTEINI

    638 deilingar
    Share 255 Tweet 160
  • ,,Af hverju í ósköpunum ættum við að rukka þig fyrir að nota peningana þína?“

    270 deilingar
    Share 108 Tweet 68
  • Mál Alberts Guðmundssonar komið til héraðssaksóknara

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • 23 ára hælisleitandi dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn barni

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • ,,Við eigum 900 milljarða en lepjum dauðann úr skel“

    425 deilingar
    Share 170 Tweet 106
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?