Í Vikulokum RÚV í gærmorgun var samtal við Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra, þar sem kjaramál og ljósmæður komu m.a. við sögu. Í því samtali sagði forsætisráðherra:
„Og ég er ansi hrædd um það, að ef við horfum á það sem sagan hefur kennt okkur í því þá eru svona samningar ekki gerðir í tómarúmi. Það er að segja að samningar við eina stétt hafa áhrif á samninga við aðrar stéttir.“
Þetta er rétt hjá forsætisráðherra og liggur í augum uppi.
En þá vaknar þessi spurning:
Voru ákvarðanir Kjararáðs um launakjör stjórnmálastéttarinnar teknar í „tómarúmi“?
Getur verið að forsætisráðherra detti í hug, að þær ákvarðanir hafi ekki áhrif á „samninga við aðrar stéttir“?
Detti ráðherranum það í hug er ekki von á góðu í samningum í haust og í vetur.
,,Segir Styrmir Gunnarsson, f.v. Ritstjóri Morgunblaðsins