• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Föstudagur, 9. júní 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Mikið um innbrot og þjófnaði á höfuðborgarsvæðinu

Innbrotsþjófarnir fylgjast gjarnan með húsum áður en þeir láta til skarar skríða

ritstjorn by ritstjorn
15. júlí 2021
in Fréttir, Innlent
0
Share on FacebookShare on Twitter
Töluvert hefur verið um innbrot og þjófnaði á höfuðborgarsvæðinu undanfarið og full ástæða er til að minna fólk á að vera á varðbergi. M.a. er um að ræða þjófnaði á reiðhjólum, rafmagnshlaupahjólum og vespum, auk þess sem nokkuð hefur verið um innbrot í bæði bíla, heimili, geymslur og á byggingarsvæði.

Fólk er því hvatt til að geyma reiðhjól og vespur innandyra, ef það hefur tök á, og umráðamenn ökutækja er minntir á að hafa ekki hluti í augsýn, sem kunna að freista þjófa. Viðbúið er að hinir illa fengnu hlutir séu boðnir til kaups og því nauðsynlegt að hafa varan á. Lögreglan ítrekar jafnframt að fólk láti vita um grunsamlegar mannaferðir (taki ljósmyndir ef slíkt er mögulegt) og að það skrifi líka hjá sér, t.d. bílnúmer eða jafnvel lýsingar á fólki, ef eitthvað óvenjulegt á sér stað í umhverfi þess.

Lögreglan vill einnig minna á mikilvægi þess að ganga tryggilega frá heimilum sínum þegar það er að heiman í lengri eða skemmri tíma og ekki er úr vegi að tilkynna nágrönnum um slíkt, en nágrannavarsla getur oft á tíðum skipt sköpum þegar kemur að því að koma í veg fyrir innbrot eða upplýsa þau.
Einnig er mikilvægt að fólk fari varlega í það að pósta myndum á samfélagsmiðlum sem getur tengt það beint við að það sé í frí og þar með að heiman. Við höfum tengt nokkur innbrot við svoleiðis færslur.

Innbrotsþjófar fylgjast gjarnan með húsum áður en þeir láta til skarar skríða, fara inn í garða og hringja jafnvel dyrabjöllunni og þykjast vera að spyrja eftir einhverjum og því er mikilvægt að hafa þessi atriði í huga. Munið að það er betra að hringja einum sinni of oft í lögregluna með upplýsingar af þessu tagi en einu sinni of sjaldan.

Upplýsingum má koma á framfæri í síma 444-1000, eða í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is Ef óskað er eftir skjótri aðstoð lögreglu vegna yfirstandandi innbrots eða grunsamlegrar mannaferða skal undantekningarlaust hafa samband við lögreglu í síma 112.

Discussion about this post

  • Laxeldisstöð sektuð um 21,6 milljón fyrir dýraníð

    Laxeldisstöð sektuð um 21,6 milljón fyrir dýraníð

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Tálmunarofbeldi mæðra

    209 shares
    Share 209 Tweet 0
  • Dæmd fyrir að saka mann um nauðgun

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Þetta er alger klikkun – 500.000 krónur fyrir venjulegt fólk á ári“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Samgöngustofa hættir innheimtu bifreiðagjalda

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?