Útflutningsverðmæti sjávarafurða árið 2021 var rúmlega 296 milljarðar króna sem er 7,4% meira en á árinu 2020. Þar af voru verðmæti frystra afurða 142 milljarðar króna og ísaðra afurða um 87 milljarðar.
Afurðir fluttar til Bretlands skiluðu mestum verðmætum eða tæpum 45 milljörðum og afurðir til Frakklands næstmestum eða um 42 milljörðum. Talnaefni hefur verið uppfært.
Umræða