• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 5. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Laugardalsá til SVFR

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
15. ágúst 2018
in Óflokkað
A A
0

Laugardalsá til SVFR

Veiðifélag Laugardalsár í Ísafjarðardjúpi og Stangaveiðifélag Reykjavíkur (SVFR) hafa samið um leigu á Laugardalsá í fjögur ár, frá og með næsta sumri. SVFR fær öll veiðiréttindi á vatnasvæðinu, því auk leigu á sjálfri Laugardalsá var samið um leigu á fallvötnum á svæðinu, þ.e. Laugarbólsvatni og Efstadalsvatni.

Laugardalsá er 16 km löng og rennur úr Laugarbólsvatni, niður Laugardal og til sjávar við vestanverðan Mjóafjörð. Seldar eru í ánna 2 stangir í júní og september, en 3 stangir eru í ánni í júlí og ágúst. Meðalveiði í ánni síðastliðin 10 ár er um 350 laxar en mest var veiðin 2015 þegar hún endaði í 521 laxi.
Gott og rúmgott veiðihús er við ánna þar sem gestir þjónusta sig sjálfir við góðar aðstæður. Einungis er veitt á flugu í Laugardalsá, en frekari upplýsingar um tilhögun veiðinnar á næsta sumri verða í næstu söluskrá SVFR.
Jón Þór Ólason, formaður SVFR:
„Það er sérstaklega ánægjulegt fyrir félagsmenn SVFR að hafa aðgang að Laugardalsá frá og með næsta sumri. Ekki aðeins er áin besta laxveiðiá Vestfjarða, heldur er svæðið allt stórfenglegt og með samhliða afnotum af vötnum á svæðinu getum við boðið okkar félagsmönnum upp á fjölskylduveiðiparadís sem á enga sig líka á sanngjörnu verði.“
SVFR hefur einnig heitið því að leggjast á árarnar með bændum og landeigendum í baráttunni gegn laxeldi í opnum sjókvíkum en fyrirætlanir um laxeldi í Ísafjarðardjúpi hafa verið nokkuð til umræðu á undanförnum árum. SVFR leggst alfarið gegn slíkum hugmyndum, enda eru þær mikil ógn við lífríki svæðisins og laxastofna á svæðinu.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair og krefjast ómerkingar

    103 deilingar
    Share 41 Tweet 26
  • Hægt verði að reka starfsmann án áminningar

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    48 deilingar
    Share 19 Tweet 12
  • Laun seðlabankastjóra hækkuðu um 43% – Er með 43 milljónir á ár

    38 deilingar
    Share 15 Tweet 10
  • Trúa á konum en ekki körlum – Sjálfsvíg karla

    21 deilingar
    Share 8 Tweet 5
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?