• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Mánudagur, 25. september 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Hrikaleg skýrsla um fátækt og bága stöðu öryrkja á Íslandi – Ríkisstjórnin fær falleinkunn, enda sama staða nú og í hruninu

Stjórnvöld forðast umræðuna eins og heitan eld og Ásmundur Einar Daðason, framsóknarflokki, ráðherra málaflokksins, kaus að láta ekki sjá sig í þættinum

ritstjorn by ritstjorn
15. september 2021
in Fréttir, Innlent
0
Share on FacebookShare on Twitter

90% ná varla endum saman – búa í fátækt og við jaðarsetningu

Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalagsins, segist engin viðbrögð hafa fengið frá stjórnvöldum við skýrslu um fátækt og bága stöðu öryrkja sem birt var í gær. Ásmundur Einar Daðason, framsóknarflokki sem er ráðherra málaflokksins kaus að mæta ekki í þáttinn og svara fyrir um málið.

Skiptir engu máli hverjir eru í ríkisstjórn – Ríkisstjórnin fær falleinkunn

Engin viðbrögð frá stjórnvöldum vegna hrikalegrar skýrslu um fátækt og bága stöðu öryrkja – 90% ná varla endum saman

„Í sannleika sagt held ég að það sé kominn tími á að maður auglýsi eftir hugrekki, hugrökku stjórnmálafólki sem hefur kjark og þor til að takast á við þetta og breyta þessum hlutum til batnaðar þannig að fólk búi ekki við þessa fátækt og niðurlægingu án þess að geta tekið þatt í samfélagi og búið börnunum sínum gott líf.

Staðan er sú sama nú, og í hruninu

Þá segir hún að engu máli skipti hverjir stjórni, ekkert hafi gerst í málaflokknum um árabil og ríkisstjórnin hafi ekkert gert og staðan sé sú sama nú og í hruninu, það komi fram í rannsókninni“ segir Þuríður Harpa.

90% ná varla endum saman – 22% geta ekki greitt fyrir mat í skóla

Ásmundur Einar Daðason, framsóknarflokki sem er ráðherra málaflokksins kaus að mæta ekki í þáttinn og svara fyrir um málið

Nýja rannsóknin sem kynnt var í gær sýnir mjög bága fjárhagsstöðu öryrkja á Íslandi, sérstaklega einstæðinga og einstæðra foreldra. 90 prósent fatlaðs fólks á erfitt með að ná endum saman og jafnhátt hlutfall þeirra þarf að neita sér um heilbrigðisþjónustu vegna kostnaðar.

80 prósent geta ekki mætt óvæntum útgjöldum og meira en einn af hverjum tíu þiggur mataraðstoð frá hjálparsamtökum.

,,Á meðan við erum að deila við stjórnvöld um kerfið og kerfisbreytingar þá bíður fatlað fólk og börn fatlaðs fólks og þau búa í fátækt og við jaðarsetningu“

Þuríður segist engin viðbrögð hafa fengið frá stjórnvöldum við skýrslunni. „Ég hef ekki fengið nein viðbrögð frá stjórnmálamönnum við þessari skýrslu.

Ég held að þessi niðurstaða komi stjórnmálafólki ekki á óvart.

Ég held að við séum það lengi búin að upplýsa stjórnvöld um stöðuna að það er ekki hægt að fela sig lengur á bakvið það að skella skuldinni á títt nefndar kerfisbreytingar til að lagfæra stöðu fatlaðs fólks því á meðan við erum að deila við stjórnvöld um kerfið og kerfisbreytingar þá bíður fatlað fólk og börn fatlaðs fólks og þau búa í fátækt og við jaðarsetningu,“ segir hún.

Rætt var við Þuríði og Kristínu Hebu Gísladóttur, framkvæmdastjóra Vörðu, í Kastljósi kvöldsins.

Þátturinn er hér: Engin viðbrögð frá stjórnvöldum

Discussion about this post

  • Óánægð með rannsókn á eignatengslum í sjávarútvegi

    Óánægð með rannsókn á eignatengslum í sjávarútvegi

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Þjóðarsátt um okurvexti?

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Verð í Fríhöfninni – Allt að 43% dýrari á leiðinni heim

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Kona í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á andláti karlmanns á sextugsaldri

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Tugmilljóna króna okurlán á Íslandi

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?