Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála birti í dag greinargerð um starfsemi meðferðarheimilisins í Varpholti og á Laugalandi á árunum 1997–2007. Helstu niðurstöður voru kynntar fyrir mennta- og barnamálaráðherra og félags- og vinnumarkaðsráðherra.
Ríkisstjórn samþykkti í febrúar 2021 tillögu þáverandi félags- og barnamálaráðherra, Ásmundar Einars Daðasonar, að Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar (nú Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála) yrði falið að kanna hvort og þá í hvaða mæli börn sem vistuð voru á meðferðarheimilinu Varpholti/Laugalandi á árunum 1997 til 2007 hafi sætt illri meðferð, andlegu eða líkamlegu ofbeldi meðan á dvöl þeirra á meðferðarheimilinu stóð.
Greinargerðin fer ítarlega yfir starfsemi meðferðarheimilisins á tímabilinu. Birtingin snertir fjölda einstaklinga, einkum þau sem dvöldu á heimilinu og býðst þeim stuðningur í Bjarkarhlíð sem er miðstöð fyrir þolendur ofbeldis. Hægt er að hafa samband við Bjarkarhlíð í síma 553-3000. Enn fremur mun Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála bjóða hlutaðeigandi samtal um niðurstöðurnar.