,,Rétt í þessu samþykkti borgarstjórn samgöngusáttmála ríkis og sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu með tólf atkvæðum gegn 11. Það er einkennilegt að eftir alla þessa vinnu sem hefur verið unnin og þeim vanda sem við stöndum frammi fyrir í ljósi loftslagsbreytinga af mannavöldum að menn geti verið á móti samkomulaginu.“ Segir Líf Magneudóttir
,,Reykjavík losar um 352 þúsund tonn af CO2 á ári. Um 245 þúsund tonn koma frá samgöngum og þar af losa bílar 204 þúsund tonn. Það er algerlega óviðunandi. Þessu þurfum við að breyta. Þetta snýst ekki lengur um val eða frelsi til að fara leiða sinna á þeim fararskjótum sem við veljum. Þetta snýst um það að stjórnvöld geri allt sem þau geta til að draga úr gróðurhúsalofttegundum og nái kolefnishlutleysi.
Að þau standi við skuldbindingar sínar gagnvart íbúum og alþjóðasamfélaginu. Það gerðu 12 borgarfulltrúar í dag með því að samþykkja samgöngusamkomulagið og því ber að fagna. Mikilvægum áfanga er náð og nú er bara að bretta upp ermar og ná enn mikilvægari áföngum sem fyrst.““ Segir Líf Magneudóttir.