• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 20. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Nýtt met slegið í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
15. október 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0
Umferðin í september á höfuðborgarsvæðinu reyndist sex prósentum meiri en í fyrra. Aldrei áður hefur jafnmikil umferð mælst í september og er þetta mesta umferð í einum mánuði fyrir utan að örlítið meiri umferð mældist í maí árið 2019. Útlit er fyrir að umferðin í ár á svæðinu aukist um níu próestn sem er verulega mikið en dugri þó ekki til að umferðin verði meiri en hún var árið 2019 að því fram kemur í tölum frá Vegagerðinni.

Nýtt met var slegið í umferðinni í nýliðnum september á höfuðborgarsvæðinu en aldrei áður hafa fleiri ökutæki ekið yfir lykilmælisnið Vegagerðarinnar á þessu svæði í september. Í síðasta mánuði fóru daglega tæplega 178 þúsund ökutæki yfir sniðin þrjú.  Þetta er jafnframt næst mesti umferðarmánuður frá upphafi mælinga. Umferðin hefur aðeins einu sinni áður mælst meiri en það var í maí 2019 en þá reyndist umferðin rétt rúmlega 178 þús. ökutæki á sólarhring.

Umferðaraukningin milli september 2020 og 2021 varð 6%. Öll snið sýndu aukningu en mest jókst umferð um mælisnið ofan Ártúnsbrekku eða um rúmlega 7%.

Nú hefur umferðin aukist um 6,3% frá áramótum það sem af er árs miðað við sama tímabil á síðasta ári.  Leita þarf aftur til ársins 2017 til að finna meiri aukningu miðað við árstíma. Umferð jókst í öllum vikudögum og mest á laugardögum eða um 10,0% en minnst á þriðjudögum eða um 2,4%. Mest var ekið á föstudögum minnst á sunnudögum.

Miðvikudagar reyndust næst meðalumferð virkra daga í mánuðinum.  Bíllausi dagurinn 22. september var með svipaða umferð og meðalumferðin reyndist á miðvikudögum í september mánuði.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    125 deilingar
    Share 50 Tweet 31
  • Sviku út 100 milljónir af fólki og fyrirtækjum

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Verslanir sem ekki taka reiðufé sektaðar um 315 milljónir

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Svartaþoka yfir miðborginni – Þykkur þokubakki við ströndina

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    138 deilingar
    Share 55 Tweet 35
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?