• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 13. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Óvenju mikið lúsaálag

Óvenju mikið lúsaálag

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
15. október 2023
in Fréttir, Innlent
A A
0

Óvenju slæm staða hefur verið undanfarnar vikur vegna lúsaálags á sunnanverðum Vestfjörðum. Í ljósi þeirra aðstæðna sem upp eru komnar og sem viðleitni til þess að hafa lúsafjölda í lágmarki yfir veturinn hefur Matvælastofnun heimilað lyfjameðhöndlanir á átta eldissvæðum eftir lögbundna umsögn Fisksjúkdómanefndar og Hafrannsóknarstofnunar.

Um er að ræða tvö eldissvæði í Tálknafirði, fjögur eldissvæði í Arnarfirði og tvö í Dýrafirði. Svæðin verða meðhöndluð með baðlyfi annars vegar og lyfjafóðri hins vegar.

Lúsalyf geta haft neikvæð áhrif á vistkerfi í nærumhverfi eldiskvía. Eins sýnir reynsla nágrannalanda að laxalús getur myndað ónæmi gegn lyfjum. Þess vegna er notkun lyfja í baráttunni gegn lús úrræði sem ekki skal beita nema í algerri neyð. Því hefur Matvælastofnun hvatt fyrirtæki til þess að leita leiða til að ná tökum á lúsaálaginu með öðrum aðferðum, en í þessum tilvikum var nauðsynlegt fyrir fyrirtækin að grípa inn í með lyfjameðhöndlun.

Mikilvægt er að fiskurinn sé með eins lítið af laxalús og mögulegt er í vetur til að koma í veg fyrir sáramyndun þegar gróandinn er sem minnstur sökum lágs hitastigs í sjó. Eins er mikilvægt að lúsaálag sé sem minnst í vor þegar viðkvæmur göngutími villtra laxfiska hefst, en lúsin hefur hingað til átt erfitt með að fjölga sér á veturna vegna lágs hitastigs sjávar.

Bakgrunnur

Á Íslandi eru einkum tvær tegundir lúsa, þ.e. laxalús (Lepeophtheirus salmonis) og fiskilús (grálús) (Caligus elongatus). Báðar tegundir eru náttúruleg sníkjudýr á laxfiskum í sjó. Laxalús finnst hins vegar einungis á laxfiskum meðan fiskilús er mjög ósértæk á hýsla og finnst á fjölda mismunandi fisktegunda.

Laxalúsin er stærri en fiskilúsin og hún nærist á roði laxfiska og getur valdið umfangsmiklum sárum sem opna möguleika fyrir tækifærissýkla í umhverfi fiskanna. Líkt og laxalúsin, nærist fiskilúsin einnig á roðinu. Hún er hins vegar mun smærri, og veldur ekki sárum enda útbúin sogskálum í stað öflugra bitkróka í kjafti laxalúsar. Hún orsakar þó vanlíðan og streitu hjá hýsli sínum, og í sumum tilfellum smávægilegum punktblæðingum. Álagið af laxa- og fiskilús á eldisdýr er streituvaldandi, sem líkt og aðrir sjúkdómsvaldar, veikir ónæmiskerfi fiskanna og gerir þá móttækilega fyrir hvers kyns smitsjúkdómum, svo sem veirusjúkdómum en einnig tækifærissýklum eins og bakteríum, sem berast í sár fiska og auka verulega umfang þeirra. Álag vegna lúsasmits getur enn fremur valdið lystarleysi hjá fiskum, sem hefur áhrif á vöxt hans og almennt heilsufar. Sé þéttleiki lúsanna mikill er hætta á að smitálag af hennar völdum verði sömuleiðis mikið með tilheyrandi álagi á nálæg eldissvæði.

Umræða
Share15Tweet10
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Eru vegtollar lausnin?

    Hringveginum verður lokað í báðar áttir

    58 deilingar
    Share 23 Tweet 15
  • Ríflega 150% verðmunur á fiski – Veiðigjöld greidd í samræmi við heimatilbúið tombóluverð

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Veitingahúsið Eyri er fimm stjörnu og er við Hjalteyri

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Alvarlega slasaður vegna hnífsstungu

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Hitinn getur farið yfir 28 stig – mögulegt að met verði slegin

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?