• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 17. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Fallist á kröfur lögreglustjóra um gæsluvarðhald

Á­kærð fyrir að ljúga nauðgun upp á mann sem svipti sig lífi

Rannsókn felld niður eftir að sakborningur svipti sig lífi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
15. nóvember 2023
in Fréttir, Innlent
A A
0

Tuttugu og þriggja ára gömul kona hefur verið ákærð fyrir að hafa borið mann röngum sökum um að hann hafi nauðgað henni. Tæpum mánuði eftir að maðurinn var handtekinn eftir kæru konunnar fyrirfór hann sér. Þetta kemur fram á vefnum vísir.is og þar segir jafnframt:

Í ákæru, sem Vísir hefur undir höndum, segir að höfða beri sakamál fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra á hendur konunni fyrir rangar sakargiftir, með því að hafa með rangri kæru og röngum framburði hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra, sunnudaginn 11. júlí og fimmtudaginn 15. júlí árið 2021, leitast við að koma því til leiðar að Dziugas Petrauskas, litháískur knattspyrnumaður og íbúi á Húsavík, yrði sakaður um eða dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn konunni, í heimahúsi á Húsavík, aðfararnótt sunnudagsins 11. júlí sama ár.

Kæra konunnar leiddi til þess að lögregla hóf rannsókn málsins og tók skýrslu af Dziugasi með réttarstöðu sakbornings. Þá var hann fluttur í fangelsið á Hólmsheiði þar sem hann sætti gæsluvarðhaldi í þrjá daga. Ætlað brot konunnar varðar allt að fjögurra ára fangelsi.

Rannsókn felld niður eftir að sakborningur svipti sig lífi

Aðfararnótt mánudagsins 9. ágúst fannst Dziugas látinn í grýttri fjöru neðan við hátt klettabelti á Húsavíkurhöfða, að því er talið eftir tuttugu og fimm metra fall. Rannsókn málsins sem hófst eftir kæru konunnar var sjálfkrafa látin niður falla eftir sjálfsvíg Dziugasar.

Dziugas var 27 ára gamall og hafði flutt til Íslands fyrr á árinu 2021. Hann hafði fengið starf hjá kísilverinu PCC á Bakka og starfað þar frá komu sinni. Í heimalandi sínu hafði hann verið öflugur knattspyrnumaður og meðal annars átt leiki með U18- og U19-landsliðum.

Í ákæru er farið fram á að konan verði dæmd til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Í málinu er einnig gerð miskabótakrafa fyrir hönd foreldra Dziugasar, sem krefjast þriggja milljóna króna hvor. Þá krefjast þeir um fjögur hundruð þúrund króna vegna útfararkostnaðar og málskostnaðar vegna bótakröfu.

Krafan er gerð á grundvelli almennrar sakarreglu bótaréttar enda er enga lögmælta bótaábyrgð að finna í ákvæði hegningarlaga um rangar sakargiftir.

Bar ekki saman um málsatvik

Lögmaður foreldra Dziugasar kvartaði til nefndar um eftirlit með störfum lögreglu vegna málsins og sagði í kvörtun að brotið hafi verið á réttindum hans. Vísir hefur kvörtunina undir höndum en henni var vísað frá nefndinni og því beint til ríkissaksóknara að rannsaka rannsókn málsins, þar sem slík rannsókn væri ekki á forræði nefndarinnar.

Í kvörtuninni er farið ítarlega yfir málavexti og framburð meints brotaþola, sakbornings og vitna. Haft er eftir konunni í skýrslutöku hjá lögreglu að hún hefði reynt að segja Dziugas að hætta þegar hann hafði við hana samræði. Hún hefði á endanum frosið.

Vitni könnuðust ekkert við nauðgun

Þá er í kvörtuninni fjallað um vitnisburði vitna, þeirra sem höfðu verið í samkvæminu í húsinu. Kona sem var í partíinu hvað meintan brotaþola vera æskuvinkonu sína sem hefði komið í heimsókn til Húsavíkur.

Þær hafi verið í partíi og þar hefði konan og Dziugas farið að spjalla saman. Eftir að húsráðandi hafi farið að sofa hafi fjórir verið eftir í húsinu, konan, Dziugas, vitnið og ein kona til.

Vitnið sagði í skýrslutöku að það hefði séð Dziugas standa upp og taka rólega í höndina á konunni, sem hefði einnig staðið upp og þau farið saman inn baðherbergi. Vitnið hafi þá farið ásamt hinni konunni að hlera hvað væri að eiga sér stað inni á baði, enda hefði heyrst „að þau væru farin að gera eitthvað, makast eða eitthvað þannig inn á baði.“.

Þá hafi í tvígang heyrst að Dziugas spurði „Is this ok?“ [Er þetta í lagi?], sem konan hafi í bæði skipti svarað játandi.

Framburður hins vitnisins er sagður samhljóða þeim sem er reifaður hér að ofan. Í honum hafi einnig komið fram að hefði konan kallað á hjálp þá hefði það heyrst.“ Segir m.a. í frétt á vefnum vísir.is

Minnast litháísks knatt­spyrnu­manns sem lést á Húsa­vík – Vísir.is

Umræða
Share10Tweet7
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    14 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Togarar á strandveiðum

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    184 deilingar
    Share 74 Tweet 46
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    128 deilingar
    Share 51 Tweet 32
  • Innflytjendur kosta hundrað milljarða á ári – Opin landamæri Schengen

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?