Vegagerðinni var að berast eftirfarandi ábending frá veðurfræðingi:
Reiknað er með hríðarveðri og stormi á fjallvegum yfir miðjan daginn, einkum verður blint og erfið skilyrði frá um 11 til 15, á Holtavörðuheiði, Bröttubrekku og á Öxnadalsheiði síðdegis og í kvöld. Einnig dimm hríð eða bleytuhríð yfir Hellisheiði nærri hádegi.
Hugleiðingar veðurfræðings
Eftir útsynning gærdagsins þá nálgast hlýtt loft landið úr suðri og framan af degi þá verður allhvöss sunnanátt með slyddu eða snjókomu, en rigningu sunnantil. Eftir hádegi gengur þó aftur í suðvestan 15-23 m/s með éljum og þá kólnar heldur aftur. Í nótt léttir síðan til austantil.
Annað kvöld dregur heldur úr vindi, en á sunnudaginn er aftur von á hlýju lofti með sunnanátt og slyddu eða snjókomu. Það er því umhleypingasamt næstu daga. Spá gerð: 15.12.2023 06:49. Gildir til: 16.12.2023 00:00.
Veðurhorfur á landinu
Sunnan 10-15 m/s, en suðvestan 15-23 uppúr hádegi. Slydda eða snjókoma með köflum, en þurrt framan af degi á Norðausturlandi. Hægari vindur um tíma norðvestantil síðdegis.
Vestan og suðvestan 13-20 m/s með éljum í nótt og léttir til austantil. Dregur úr vindi annað kvöld. Hiti 0 til 6 stig, en vægt frost á norðaustanverðu landinu á morgun. Spá gerð: 15.12.2023 05:27. Gildir til: 16.12.2023 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á sunnudag:
Suðlæg átt 5-13 m/s og rigning eða snjókoma með köflum, en lengst af þurrt norðaustanlands, hvassast syðst. Víða él um kvöldið. Hiti í kringum frostmark.
Á mánudag:
Vestlæg átt 5-10 m/s, en 10-15 með suðurströndinni. Dálítil él en bjart að mestu austantil. Frystir um mest allt land.
Á þriðjudag:
Norðvestlæg átt með snjókomu eða éljum, en styttir upp sunnan heiða er líður á daginn. Frost 0 til 7 stig, en hiti um frostmark með suðurströndinni.
Á miðvikudag:
Líklega austlæg átt og rigning eða snjókoma, einkum sunnantil. Hlýnar í bili syðst, en áfram kalt fyrir norðan.
Á fimmtudag:
Útlit fyrir vestlæga átt með éljum fyrripartinn, en síðan norðlægari og styttir upp sunnantil. Harðnandi frost.
Spá gerð: 15.12.2023 08:15. Gildir til: 22.12.2023 12:00.