• 442.is
  • Veiðin.is
Fréttatíminn.is
Ekkert fannst
View All Result
  • Innskráning
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsendar greinar
  • Afþreying
  • Veiðin.is
Auglýsingar
Hafa samband
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsendar greinar
  • Afþreying
  • Veiðin.is
Ekkert fannst
View All Result
Fréttatíminn.is
Ekkert fannst
View All Result
AUGLÝSING

Vandinn við sameign ríkis og einkaaðila að Landsbanka

Ritstjórn Fréttatímans eftir Ritstjórn Fréttatímans
16. janúar, 2019
0 0

Það er ljóst að ný einkavæðing banka verður á dagskrá þjóðfélagsumræðna næstu misseri. Hvítbók um bankana liggur fyrir og verður væntanlega grundvöllur þeirra umræðna. Í ljósi fenginnar reynslu af fyrri einkavæðingu verða vafalaust efasemdir af margvíslegu tagi um nýja einkavæðingu.
Eitt af því, sem Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, hefur nefnt er að ríkið haldi 30-40% hlut í Landsbankanum. Með því er hann bersýnilega að koma til móts við sjónarmið þeirra, sem telja að fenginni reynslu að ríkið eigi að halda einhverjum eignarhlut í bankakerfinu.
Í þeim umræðum, sem framundan eru verður að ræða af fullri hreinskilni alla þætti þessa máls. Eitt af því, sem verður erfitt í slíkri sameign ríkis og einkaaðila að Landsbanka er einfaldlega hvernig þeirri sambúð yrði háttað. Eignarhlutur af þeirri stærðargráðu, sem Bjarni nefnir er nánast ráðandi hlutur en kallar þó á samstarf við þá einkaaðila, eða einhverja þeirra, sem hlut ættu í bankanum á móti ríkinu.
Þá mundu koma til sögunnar margvísleg persónuleg tengsl, hagsmunatengsl, pólitísk tengsl o.sv.frv. Og fyrirsjáanlegt er að slíkt samstarf mundi mótast af því hverjir væru við völd hverju sinni á Alþingiog í stjórnarráðinu.
Þetta yrði snúin sambúð og ekki alltaf friðsamleg.” Segir Styrmir Gunnarsson, f.v. ritstjóri Morgunblaðsins.
Tengt efni:
https://www.fti.is/2019/01/15/landsbankinn-tilbuinn-til-solu/
https://www.fti.is/2019/01/13/fjarmalakerfid-a-ad-vera-traust-og-thjona-samfelaginu-a-hagkvaeman-og-sanngjarnan-hatt/

DeilaTweetDeila
Ritstjórn Fréttatímans

Ritstjórn Fréttatímans

Auglýsing

Mest lesið í dag

  • Á bráðamótöku með stunguáverka eftir líkamsárás

    0 deilingar
    Deila 0 Tweet 0
  • Brýnt að jafna kynjahlutföll á skipum

    0 deilingar
    Deila 0 Tweet 0
  • Así vill koma í veg fyrir þrælahald og mannsal á íslenskum farskipum

    46 deilingar
    Deila 46 Tweet 0
  • Íslensk útgerðarfyrirtæki eru þurfalingar, ómagar og afætur í íslensku þjóðfélagi

    474 deilingar
    Deila 474 Tweet 0
  • Óréttlæti og valdníðsla

    43 deilingar
    Deila 43 Tweet 0
Fréttatíminn.is

Fréttatíminn er óháður miðill

Fréttatíminn © 2020

Ekkert fannst
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsendar greinar
  • Afþreying
  • Veiðin.is

Fréttatíminn © 2020

Velkomin/n!

Skráðu þig inn hér fyrir neðan

Gleymt lykilorð?

Búa til aðgang!

Fill the forms bellow to register

Það þarf að fylla inn alla reiti. Innskráning

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Innskráning
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?