Það var glúrinn tippari sem fékk 13 rétta á Enska getraunaseðlinum í gær og vann tæpar 18 milljónir króna. Tipparinn keypti miðann í getraunaappinu og er þetta hæsti vinningur sem unnist hefur á Enska getraunaseðilinn sem keyptur er í appinu.
Tipparinn tvítryggði 7 leiki, þrítryggði 1 leik og var með eitt merki á 5 leikjum. Alls kostaði getraunaseðillinn 5.760 krónur. Tipparinn er frá Akureyri og er stuðningsmaður KA.
Umræða