,,Ekki er hægt að veita svör um hvernær málin verða tekin til umfjöllunar“
,,Vegna málafjölda og manneklu hefur til langs tíma ekki verið hægt að taka öll mál til meðferðar strax í kjölfar þess að þau berast embættinu. Hér að neðan má finna upplýsingar um að það hvaða mál hafa verið tekin til umfjöllunar. Vakin er athygli á að upplýsingarnar eiga við um erindi þar sem annað foreldri leggur inn beiðni og óskar umfjöllunar sýslumanns. Málsmeðferðartími annarra mála, t.d. vegna skilnaða, sambúðarslita, staðfestinga á samningum foreldra o.fl. er mun styttri. Bent er á upplýsingar um önnur mál á vefsíðu sýslumanna.“ Segir á vef embættisins og svo er fjallað nánar um málið:
Ekki er hægt að veita nánari svör um það hvernær tiltekin mál verða tekin til umfjöllunar:
Dagsektarmál
Beiðnir um álagningu dagsekta eru teknar til umfjöllunar þegar þær berast.
Umgengni – Forsjá – Lögheimili
Umgengni – Forsjá – Lögheimili: erindi sem bárust fyrir 20. maí 2019 hafa verið tekin til umfjöllunar.
Meðlag – Sérstakt framlag – Menntunarframlag
Erindi sem bárust fyrir 20. maí 2019 hafa verið tekin til umfjöllunar.
Mál sem vísað hefur verið í sáttameðferð
Mál sem vísað var í sáttameðferð fyrir 14. maí 2019 hafa verið tekin til umfjöllunar hjá sáttamönnum.
Ættleiðingarmál – Frá Íslenskri ættleiðingu
Erindi frá Íslenskri ættleiðingu eru tekin til umfjöllunar þegar þau berast.
Ættleiðingarmál – Önnur
Erindi sem bárust fyrir 10. júlí 2019 hafa verið tekin til umfjöllunar.