Komið var með hund á dýraspítalann í Garðabæ eftir að hann hafði étið fisk sem að búið var að blanda í frostlegi
,,Athugið dýraeigendur í Hafnarfirði: Í gærkvöldi var komið með hund til okkar á Dýraspítalann í Garðabæ og talið er að hann hafi étið fisk sem hafði verið í blandaður frostlegi. Frostlögur er banvænn fyrir öll spendýr. Þetta gerðist við golfvöllinn á Holtinu.
Hundurinn var fárveikur og ekki útséð með hvort varanlegur skaði hefur orðið en hann hefur þurft mikla meðhöndlun eftir þetta og virðist á batavegi. Sá sem gerir svona er fársjúkur einstaklingur og við biðlum til allra að hafa augu og eyru opin varðandi umhverfi sitt og veiti lögreglu og MAST upplýsingar um grunsamlega hegðun sem geti bent til þess að viðkomandi sé viðriðinn þennan glæp. Fylgist vel með því hvað hundarnir ykkar eru að snuðra og kattareigendur ættu að hafa augun hjá sér um grunsamlegt æti sem lagt er út.
Atvikið hefur verið tilkynnt til MAST.
1. stig: (þessi einkenni koma fram innan 30 mínútna frá því dýrið innbyrðir frostlög) : slappleiki,mikil uppköst, jafnvægisleysi jafnvel, aukin þvaglát, aukinn þorsti, líkamshiti fellur/kuldi, krampar, meðvitundarleysi.
2. stig: 12-24t frá því innbyrt: stundum virðast einkenni lagast töluvert og ganga tilbaka sem gefur okkur falska von um bata. Hins verður vökvaskortur hjá dýrinu og öndunartíðni og hjartsláttartíðni hækkkar.
3. stig: 36-72 tímum frá því innbyrt: einkenni alvarlegrar nýrnabilunar koma fram sem eru alvarlegar bólgur í nýrum , mikill sársauki og framleiðsla á þvagi minnkar og hættir jafnvel alveg. Áframhaldandi versnandi ástand með miklum slappleika, engin matarlyst, uppköst, krampar og meðvitundarleysi og dauði að lokum.
Meðhöndla þarf dýrin innan 8-12 tíma frá því eitrið er innbyrt eigi dýrin að eiga einhverja von .
Geymið uppköst/ eða leifar af því sem dýrið át, sem sönnunargögn!“ Segir á facebooksíðu spítalans.