Í nótt og í morgun hefur verið hríðarveður með miklum ANA-NA skafrenningi á Vestfjörðum. Ákveðið hefur verið að rýma íbúðarhús við Ólafstún á Flateyri og nokkur önnur hús ofarlega í bænum og tvö íbúðarhús við Urðargötu á Patreksfirði.
Dregið hefur úr úrkomu og vindi síðan í morgun en síðdegis í dag eykst úrkoma aftur og bætir í vindinn og spáð er NA-hríð fram á miðvikudag. Snjóflóðavakt Veðurstofunnar fylgist grannt með þessum aðstæðum í samráði við almannavarnir.
Norðaustan stórhríð (Appelsínugult ástand) er nú á Vestfjörðum
Norðaustan stormur eða rok, 20-25 m/s, með talsverðri snjókomu. Búast má við miklum skafrenningi með lélegu skyggni og slæmum akstursskilyrðum. Ekkert ferðaveður.
https://gamli.frettatiminn.is/vardskipid-tyr-a-leid-til-vestfjarda/