Hugleiðingar veðurfræðings
Lægðin sem stjórnaði veðrinu í gær er enn á Grænlandshafi en hún hefur grynnst töluvert. Veðrið verður því áfram svipað en vindurinn þó öllu minni, suðvestan 8-15 m/s og éljagangur, en yfirleitt þurrt um landið norðaustanvert. Frost 0 til 5 stig.
Í nótt og fyrramálið gengur kröpp lægð til norðurs fyrir vestan land og hún veldur suðaustan hvassviðri eða stormi um tíma í flestum landshlutum með snjókomu eða slyddu. Á morgun snýst svo í allhvassa eða hvassa suðvestanátt með talsverðum éljagangi, en það styttir smám saman upp norðaustantil á landinu. Í nótt og á morgun geta því víða skapast varasamar aðstæður til ferðalaga. Spá gerð: 16.03.2022 06:33. Gildir til: 17.03.2022 00:00.
Veðuryfirlit
Skammt S af Ammassalik er víðáttumikil 960 mb lægð sem hreyfist lítið og grynnist. 800 km SSV af Hvarfi er vaxandi lægðardrag sem fer A og síðar NA.
Veðurhorfur á landinu
Suðvestan og sunnan 8-15 m/s og éljagangur, en yfirleitt þurrt um landið NA-vert. Frost 0 til 5 stig. Suðaustan hvassviðri eða stormur um tíma í flestum landshlutum í nótt og fyrramálið með snjókomu eða slyddu. Snýst í suðvestan 13-20 á morgun með éljum, en styttir upp NA-til.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Suðvestan 8-15 m/s og éljagangur, hiti um og undir frostmarki.
Suðaustan 15-23 og snjókoma um tíma í nótt, en snýst í suðvestan 13-20 með éljum á morgun.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag:
Suðaustan hvassviðri eða stormur um morguninn og snjókoma um tíma í flestum landshlutum. Snýst síðan í suðvestan 13-20 m/s með éljum, en styttir upp NA-til. Frost 0 til 4 stig.
Á föstudag:
Minnkandi suðvestanátt og él, en þurrt NA-til á landinu. Hiti um og undir frostmarki. Snjókoma eða slydda á S- og A-landi undir kvöld.
Á laugardag:
Suðvestan og vestan 5-13 og dálítil él. Snjókoma eða rigning á A-verðu landinu um morguninn, en birtir síðan til þar. Hiti áfram svipaður, en hlýnar við SA-ströndina.
Á sunnudag:
Hægur vindur um morguninn, bjart að mestu og vægt frost. Suðaustan 5-13 seinnipartinn og hlýnar með dálítilli rigningu eða slyddu, en þurrt að kalla NA-lands.
Á mánudag og þriðjudag:
Suðaustanátt og súld eða dálítil rigning, en þurrt á N- og A-landi. Hiti 3 til 9 stig.