Nokkur atriði sem geta hjálpað ykkur við vorhreingerninguna!
*Setja dash af mýkingarefni út í vatnið þegar er verið að þrífa rúður.
*Setja edik út í vatnið þegar er verið að þrífa baðflísarnar.
*Látið 2-3 tsk af matarsóda standa í opnu íláti í ískáp og þið losnið við alla lykt úr honum!
*Ef börnin eru að perla og perlurnar fara út um allt þá er bara að skella nælonsokk á ryksuguna og sjúga perlurnar upp, taka sokkinn og tæma í perluboxið.
*Til þess að þrífa skýjaða blómavasa er gott að fylla þá af vatni og setja fullt af salti og þá verða þeir aftur glærir og fínir.
*Sítrónudroparnir eru góðir til að ná upp límmiðaklessum.
*Gott ráð til að pússa silfrið. Sjóðið vatn og hellið í bala, setjið álpapparsræmur út í og smá dass af matarsóda og hendið síðan silfrinu út í.
*Svo er um að gera að slaka á meðan silfrið hreinsast sjálft, ekkert pússerí og vesen.
*Bílabón á flísarnar á baðinu, halda glansanum í ár.
*Sítrónudropar eru líka góðir til að ná límklessum úr hári þegar verið er að föndra.
*Ef lím eða vax fer í fötin, setjið dagblað yfir blettinn og straujið yfir á lágum hita, nær öllu úr.
*Til að ná grasgrænku úr fötum, hellið nýmjólk í blettinn og svo uppþottarlegi og nuddið saman.
*Fitublettir: hellið kóki í blettinn (passa það sé gos í kókinu) og látið liggja í c.a. mínútu og svo beint í þvottavélina.
*Til þess að láta krómaða hluti sem eru orðnir ryðgaðir verða aftur krómaða þá nota kók og álpappír.
*Til þess að fá gljáa á parket er best að skúra upp úr Lúx spæni (eins og maður notar við að handþvo flíkur). Eftir 2-3 skipti er parketið komið með rosalega fallegan gljáa.
*Tannkrem á silfur, nudda og skola svo með köldu vatni. Tannkrem á pennastrik og liti á veggjum þrífa það svo af með blautri tusku. Uppþvottalög á fitubletti í fötum eins og td eftir smjör, Nudda uppþvottaleginum í og láta hann liggja á í smá stund og smella þessu svo í þvottavélina
Edik 🙂 Er sótthreinsandi t.d. Er líka lyktareyðandi, blandaðu borðediki við vatn og stjúktu innan úr skáp með vondri lykt, eða helltu því í dýnu sem er vond lykt af, eða leggðu illa lyktandi í bleyti eða settu smá edik í þvottvélina 🙂 Ég þríf allt með ediki, gólf þurrka af…. name it! Mjög gott að láta smá dry edik í skál og inní ískáp. Eins að strjúka innan úr ískápnum með ediki til að losna við vonda lykt. Edik lyktin fer síðan á örskotstundu, en hún tollir í tuskunni svo ef þér líkar lyktin illa, hentu þá tuskunni í þvott!
Matarsódi: Blandar honum við örlítið vatn og þú er komin með lang, langbesta ræstikremið! Hann er líka lyktareyðandi.
Mýkingarefni: Er afrafmagnandi og stórsniðugt til þess að m.a. strjúka af rimlagardínum og rafmagnstækjum! Blandið mýkingarefninu við vatn og vindið tusku uppúr því.
Kartöflumjöl: Dregur í sig vökva/raka. Ef það er raki í skáp eða dýnu settu kartöflumjöl. Ef þú ert með brunninn bossa eða hlaupubólurass, settu þá á það kartöflumjöl. Til að ná litum af vegg: tannkrem og naglabursti. Gott er að vera í gúmmí hönskum. WD-40 hefur líka virkað vel.
Hvítir sokkar verða alveg skjannahvítir ef þeir eru soðnir í vatni með nokkrum sítrónusneiðum. Sítrónan er náttúrulegt bleikiefni. Sápuduft fyrir UPPÞVOTTAVÉLAR gerir líka sokkana alveg hvíta 🙂