• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 14. nóvember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ný námsleið á meistarastigi um ráðgjöf í málefnum fólks með heilabilun

Ný námsleið á meistarastigi um ráðgjöf í málefnum fólks með heilabilun

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
16. mars 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0

Ráðgjöf í málefnum fólks með heilabilun er ný námsleið við Háskólann á Akureyri sem hefst næsta haust. Heilbrigðisráðuneytið veitti skólanum 7 milljóna króna styrk til að koma náminu á fót til að fylgja eftir áherslum í aðgerðaáætlun ráðuneytisins í þjónustu við fólk með heilabilun. Námsleiðin verður kynnt á opnun kynningarfundi háskólans mánudaginn 18. mars.

„Ég fagna því innilega að þessi námsleið sé orðin að veruleika. Fólk með heilabilun er viðkvæmur hópur með margvíslegar og flóknar þarfir. Það krefst þverfaglegrar þekkingar að veita þessum hópi góða þjónustu, sinna stuðningi við aðstandendur og fræða starfsfólk sem kemur að málefnum einstaklinga með heilabilun. Þessi námsleið sem er nýjung hér á landi markar því tímamót“ segir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.

Námið er samstarfsverkefni Háskólans á Akureyri (HA) og Háskóla Íslands. Það felur í sér 60 eininga (ECTS) viðbótardiplómanám á meistarastigi fyrir nemendur með grunnnám á Bakkalárstigi í heilbrigðis- og félagsgreinum og er námsleið innan hjúkrunarfræðideildar.

Eins og fram kemur á vef HA felst megininntak námsins í sérhæfingu á sviði heilabilunar með áherslu á persónumiðaða, heildræna og samþætta ráðgjöf og þjónustu við fólk með heilabilun og aðstandendur þeirra auk ráðgjafar og fræðslu til faghópa, almennings og stofnana. Námið er þverfræðilegt enda krefst ráðgjöf í heilabilun víðrar sýnar og samstarfs margra aðila.

Mikil þörf er á aukinni menntun og fagþekkingu í þessum málefnum í ljósi ört vaxandi hóps með heilabilun. Námið hefur því mikið samfélagslegt gildi og ljóst að þekking þeirra sem ljúka því mun koma að góðum notum víða innan heilbrigðis- og velferðarkerfisins.

  • Nánar um námið á vef Háskólans á Akureyri
  • Aðgerðaáætlun um þjónustu við einstaklinga með heilabilun
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Egill greiddi 17.776 krónur fyrir klukkustund í bílastæðagjald

    Egill greiddi 17.776 krónur fyrir klukkustund í bílastæðagjald

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • ,,Morðinginn er enn á lífi og það er vitað hver hann er“

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • ,,Geirfinnur var myrtur í bílskúrnum heima hjá sér – Vitni horfði á drápið“

    226 deilingar
    Share 90 Tweet 57
  • Helgi Pétursson látinn

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • ,,Það er búið að ákveða ofurskatta á bílaumferð í borginni“ segir heimildarmaður í innsta hring

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?