• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 2. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Hvatt til upplýstrar umræðu um umhverfisáhrif bíla

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
16. apríl 2018
in Óflokkað
A A
0

Hvatt til upplýstrar umræðu um umhverfisáhrif bíla

Hvatt til upplýstrar umræðu um umhverfisáhrif bíla

Aðalfundur Bílgreinasambands Íslands var haldin í gær í Húsi atvinnulífsins og var fundurinn vel sóttur og málefnalegur. Á aðalfundinum var ein ályktun samþykkt er snýr að tækniþróun bíla og þá allra bíla,bæði nýorkubíla sem og bíla sem knúnir eru áfram af jarðefnaeldsneyti.
Öfgafull umræða og ranghugmyndir virðast hafa fengið byr undir vængi frá hinum ýmsu aðilum í þjóðfélaginu sem ganga út útá að bílar sem knúnir eru áfram með bensín og dísil séu að hverfa af markaði sökum þess að þeir mengi meira en allt annað sem að sjálfsögðu er langt frá veruleikanum eins og sannast best með þeim vélum sem eru komnar í nýja bíla og eru á leiðinni frá framleiðendum.
Ályktun Bílgreinasambandsins sem samþykkt var á aðalfundinum í gær er eftirfarandi:
Aðalfundur Bílgreinasambandsins, er haldinn var í Húsi atvinnulífsins fimmtudaginn 12. apríl 2018, hvetur upplýstrar umræðu um umhverfisáhrif bíla þannig að hún taki mið af nýrri framþróun tæknilausna.
Umræðan í dag beinist eðlilega mjög að rafbílavæðingu sem er afar mikilvæg, ekki síst vegna okkar hreinu raforku, en koltvíoxíðlosun bifreiða hér á landi er um 4% af heildar CO2 losun landsmanna.  Hins vegar má ekki líta fram hjá þeirri umbyltingu sem nú á sér stað í þróun dísil- og bensínvéla. Losun níturoxíðs nýrra bíla er hverfandi, auk þess sem nýjustu dísilbílarnir er útbúnir sérstökum síum sem fjarlægja útblástursefni er valda svif- og reykmengun.
Þessi tækniþróun er því lykill að lausn þess að draga enn frekar úr mengun af völdum bílaumferðar.
Bifreiðar eru meðal forsendna efnahagslegra framfara og lífsgæða. Huga þarf að sem bestu rekstrarumhverfi fyrir þá sem kjósa að eiga bíla samhliða því að gera sífellt meiri umhverfiskröfur til bifreiða.  Í því sambandi er vert að minna á að nýir bílar, sem allir uppfylla Euro 6 staðalinn, eru miklu hreinni kostur frá umhverfissjónarmiði en eldri gerðir bíla.
Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa hélt Guðmundur F. Úlfarsson, prófessor í samgönguverkfræði við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla Íslands, afar fróðlegt og skemmtilegt erindi undir fyrirsögninni „Framtíðarsýn á samgöngur“ þar sem hann ræðir þróun samgangna á landi. Bendi hann þar á afar athyglisverðar staðreyndir með dæmum um rangar hugmyndir og ákvarðanir varðandi samgöngur, samgöngumannvirki og þéttingu byggðar.

  • Stjórn Bílgreinasambandsins á næsta starfsári skipa eftirtaldir einstaklingar:
  • Formaður var kjörinn Jón Trausti Ólafsson – ASKJA
  • Áskell Gíslason  – Höldur
  • Baldur Davíðsson – Armur
  • Bjarni Benediktsson – Víkurvagnar
  • Einar Sigurðsson – Bifreiðaverkstæði Reykjavíkur
  • Friðbert Friðbertsson – HEKLA
  • Skúli K. Skúlason – BL
  • Varamenn:
  • Benedikt Eyjólfsson – Bílabúð Benna
  • Guðmundur Ingi Skúlason – Kistufell
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    67 deilingar
    Share 27 Tweet 17
  • Niðurfelling olíugjalds ekki skilað sér að fullu til neytenda

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Stjórnarsáttmáli sem Viðreisn og Samfylkingin meintu raunverulega ekki neitt með

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Alþingismanni hótað

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Íslenska vatnið líka með bókun 35 – vatn á að verða „alþjóðleg eign“

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?