Eins og fram hefur komið stendur yfir öryggisinnköllun á bílum með mögulegan galla í ræsibúnaði fyrir loftpúða frá Japanska framleiðandanum Takata. Þessi innköllun er ein sú viðamesta að umfangi sem bílaframleiðendur hafa staðið frammi fyrir og snertir marga framleiðendur.
Meðfylgjandi eru upplýsingar frá BL með upplýsingum um yfirstandandi skipti á öryggisloftpúðum í bílum frá BL. Innkallanirnar eiga við tilteknar gerðir bíla frá Nissan, Subaru og BMW eins og sjá má hér að neðan og í meðfylgjandi viðhengi.
Innkallanirnar eiga EKKi við um bíla frá Dacia, Hyundai, Isuzu, Jaguar, Land Rover, MINI og Renault. BL hefur sent öllum eigendum bíla sem innkallanirnar eiga við um þar sem fyrirtækið hvetur hlutaðeigandi til að hafa samband við BL og panta tíma í endurgjaldslaus loftpúðaskipti. BL hefur einnig sett upp sérstaka vefsíðu (https://innkollun.bl.is/) til að auðvelda bíleigendum ferlið hefur BL þar sem hægt er að slá inn 5 stafa bílnúmeri (sk. fastanúmer) til að sjá hvort umræddur bíll sé á innköllunarskrá. Á skránni eru einungis bílar sem BL hefur flutt inn og selt. Nauðsynlegar upplýsingar um aðra bíla af merkjum BL sem fluttir fluttir voru inn af öðrum, nýir eða notaðir, þarf að leita sérstaklega að í kerfum framleiðenda
Hvaða bílar BL eru ekki með loftpúða frá Takata
Af þeim merkjum sem BL selur og þjónustar eru eftirfarandi framleiðendur ekki með loftpúða frá Takata og því á innköllunin ekki við eftirtalda: Dacia, Hyundai, Isuzu, Jaguar, Land Rover, MINI og Renault.
Þau merki BL sem innköllunin nær til
Af þeim merkjum sem BL selur og þjónustar eru eftirfarandi framleiðendur með loftpúða frá Takata: Nissan, Subaru og BMW. Árgerðir bílana og yfirlit yfir þær gerðir sem um er að ræða má finna hér að neðan ásamt stöðu á innkölluninni eins og hún var í byrjun apríl 2019.
Nissan:
Gerðir | Árgerðir | Fjöldi | Lokið | Eftir |
Patrol, X-Trail, Note, Almera, Navara D22, Terrano og Tiida | 2007 og eldri | 4.200 | 2.229 | 1.971 |
Subaru:
Gerðir | Árgerðir | Fjöldi | Lokið | Eftir |
Impreza og Forester | 2009-2014 | 510 | 317 | 193 |
Legacy, Outback og Tribeca | 2014-2011 | 2.186 | 1.001 | 1.185 |
Impreza | 2004-2008 | 528 | 337 | 191 |
BMW:
Gerðir | Árgerðir | Fjöldi | Lokið | Eftir |
5 series, 3, series og X5 | 2005 og eldri | 158 | 84 | 74 |
5 series, 3, series og X5 | 2005 og eldri | 122 | 30 | 92 |
5 series og X5 | 2005 og eldri | 3 | 1 | 2 |
3 series | 2005 og eldri | 109 | 5 | 104 |
Nánari upplýsingar á vefsíðunni
Mjög mikilvægt er að eigendur ofangreindra bíla af umræddum árgerðum svari innköllun BL með tímapöntun fyrir loftpúðaskiptin. Til að auðvelda bíleigendum ferlið hefur BL nú sett upp sérstaka vefsíðu á bl.is (https://innkollun.bl.is/) þar sem hægt er að slá inn 5 stafa bílnúmeri (sk. fastanúmer) til að sjá hvort umræddur bíll sé á innköllunarskrá. Sé bíllinn á skránni er eigendum bent á að hafa samband við BL í síma 525 8000 til að panta endurgjaldslausan tíma í loftpúðaskipti.
Á við bíla frá BL
Þess ber að geta að ofantaldar innkallanir eiga aðeins um þá bíla sem BL hefur flutt inn. Nauðsynlegar upplýsingar um aðra bíla af merkjum BL sem fluttir fluttir voru inn af öðrum, nýir eða notaðir, þarf að leita sérstaklega að í kerfum framleiðenda. Hægt er að senda póst á bl@bl.is til að fá sérstaka uppflettingu