• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 16. janúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Skattabreytingarnar þurfa að koma hratt til framkvæmda og án undanbragða

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
16. apríl 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar og Efnahags- og skattanefndar ASÍ og Drífa Snædal, forseti ASÍ, skrifa:
Grundvöllur þeirra samninga sem nú eru í atkvæðagreiðslu hjá félagsmönnum stéttarfélaganna er meðal annars loforð um skattalækkanir til handa þeim sem lægstar tekjur hafa, þar með taldir aldraðir og öryrkjar. Í yfirlýsingu stjórnvalda í tengslum við samningana stendur orðrétt:
„Komið verði á fót þriggja þrepa skattkerfi með nýju lágtekjuþrepi. Miðað er við að sú aðgerð auki ráðstöfunartekjur tekjulægsta hópsins um tíu þúsund krónur á mánuði.“
Í ljósi þeirra alvarlegu breytinga sem átt hafa sér stað á skattkerfinu á síðustu áratugum, þar sem skattar hafa verið færðir af tekjuháum hópum yfir á tekjulága, krafðist verkalýðshreyfingin vegna augljósra sanngirnissjónarmiða fjögurra þrepa skattkerfis auk leiðréttingar á fyrrnefndri skattatilfærslu. Lengra varð ekki komist að þessu sinni en barátta Alþýðusambandsins fyrir réttlátu skattkerfi heldur áfram.
Það er ljóst að skattabreytingarnar þurfa að koma hratt til framkvæmda og án undanbragða. Fulltrúar vinnandi fólks munu ekki sætta sig við að þær verði innleiddar á næstu þremur árum. Á þeim félagsfundum sem undirritaðar hafa setið, þar sem samningarnir og yfirlýsing stjórnvalda hefur verið kynnt, leggja félagsmenn mikla áherslu á skjót svör af hálfu stjórnvalda. Öll spjót standa því á stjórnvöldum að svara kalli vinnandi fólks og upplýsa um það hvernig fyrirhugaðar skattalækkanir verða framkvæmdar.
 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Grillmarkaðurinn er fyrsta flokks veitingastaður – Frábærar veitinga og þjónusta

    Alvarleg líkamsárás – tveir í gæsluvarðhaldi

    34 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Egill greiddi 17.776 krónur fyrir klukkustund í bílastæðagjald

    59 deilingar
    Share 24 Tweet 15
  • ,,Það er eitthvað brotið í íslenska menntakerfinu“

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Stórútgerðin greiðir himinhá veiðigjöld erlendis

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Samtök um karlaathvarf -„ekki réttu aðilarnir til að hljóta styrk“

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?