Gegn framsali á þjóðarauðlindum og peningaaustri til vina og vandamanna ráðamanna á Íslandi
Það er aldeilis sem ég hef kveikt neista í stofnanda Viðreisnar og Eurokrötunum sem vinna fyrir hann en þetta er þriðja daginn í röð sem Fréttablaðið prentar ástarjátningu til mín.
Það gleður mig þó að sjá hversu spenntir þeir eru fyrir mögulegu forsetaframboði mínu þar sem ég hef ekki farið í grafgötur með andúð mína á Evrópusambandinu sem og að segja spillingunni á Íslandi stríð á hendur.
Eins er ég mjög ákveðinn þegar kemur að því að forseti eigi að nýta málskotsréttinn til að auka beint lýðræði í landinu.
Ætla ég að taka þessu sem svo að blaðamenn og eigandi Fréttablaðsins hafi nú séð ljósið og séu með mér í liði að berjast gegn framsali á þjóðarauðlindum og peningaaustri til vina og vandamanna ráðamanna í formi sölu ríkiseigna á spottprís.
Eins vona ég að þau verði sammála mér í afstöðu minni gegn kvótakerfinu og hversu mikið ég legg upp úr því að Íslendingar eigi sínar auðlindir sjálfir en ekki fáir sem útvaldir eru af spillingaröflunum.
Það er af mörgu að taka þegar kemur að því að leiðrétta mistök ráðamanna fortíðar og nútíðar sem hafa haft af þjóðinni þar sem hún réttilega á. Því er alltaf gott að fá liðsauka í þeirri baráttu og fagna ég þessum nýju liðsmönnum mínum sem greinilega þrá ekkert heitar en að sjá mig á Bessastöðum.
Takk fyrir umfjöllunina! ?