• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 4. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

90% verðandi foreldra sækja um fæðingarorlof með stafrænum hætti

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
16. apríl 2023
in Fréttir, Innlent
A A
0

Hátt í 90% verðandi foreldra sækja nú um fæðingarorlof með stafrænum hætti, en stafræn umsókn um fæðingarorlof hefur undanfarin ár verið í stöðugri þróun hjá Stafrænu Íslandi og Vinnumálastofnun.

Síðan opnað var fyrir stafrænar umsóknir í byrjun árs 2022, hefur áhersla verið lögð á að auka og bæta virkni umsóknarferlisins sem auðveldar verðandi foreldrum enn frekar að sækja um fæðingarorlof á einfaldan og notendavænan hátt. Í fyrstu stafrænu útgáfu umsóknarinnar gátu um 70% verðandi foreldra sótt um fæðingarorlof stafrænt, þ.e. fólk á almennum vinnumarkaði og sjálfstætt starfandi.

Eins og notkunin sýnir hafa foreldrar tekið stafrænni umsókn um fæðingarorlof hefur verið gríðarlega vel enda er nú með einföldum hætti hægt að ganga frá umsókn í símanum, sem áður krafðist talsvert meiri vinnu og fyrirhafnar. Einnig hefur yfirsýn yfir umsóknir batnað en hægt er að fylgjast með stöðu þeirra á Mínum síðum Ísland.is og í Ísland.is appinu.

Markvisst hefur verið unnið að því síðastliðið ár að gera stafrænu umsóknina aðgengilega fyrir alla. Nú geta námsmenn, foreldrar utan vinnumarkaðar og atvinnuleitendur sótt um fæðingarorlof á vefnum. Þá er einnig hægt að sækja um ný tímabil og breyta tímabilum á fæðingarorlofi. Nýjasti hópurinn sem mun á næstu misserum geta sótt um stafrænt eru þau sem taka barn í varanlegt fóstur eða ættleiða barn. Að auki mun barnshafandi foreldri, sem vegna sérstakra aðstæðna þarf að dvelja fjarri heimili sínu fyrir fæðingu barns, geta sótt um dvalarstyrk. Þar með er hringnum lokað og stafrænt fæðingarorlof aðgengilegt öllum sem vilja.

Hið nýja sjálfvirka ferli sækir öll þau gögn sem þurfa að fylgja umsókninni og sendir sjálfkrafa áfram til maka og atvinnurekanda til samþykktar, en ef kalla þarf eftir frekari gögnum, eins og læknisvottorði eða staðfestingu á skólavist námsmanna er nú hægt að bæta þeim gögnum við á síðari stigum í ferlinu.

Andri Heiðar Kristinsson framkvæmdastjóri Stafræns Íslands:

Stafræn umsókn um fæðingarorlof hefur rutt leiðina fyrir flókna ferla sem kalla eftir gagnaöflun frá mörgum stofnum. Það er virkilega ánægjulegt og hvetjandi að sjá að verðandi foreldrar eru að taka stafræna ferlinu vel.

Stafræn umsókn um fæðingarorlof er gríðarstórt samstarfsverkefni Fæðingarorlofssjóðs, sem heyrir undir Vinnumálastofnun, og Stafræns Ísland. Það var upphaflega unnið í samstarfi við þróunarteymið Aranja, en frá mars 2022 tók ráðgjafafyrirtækið Deloitte við verkefninu.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair og krefjast ómerkingar

    64 deilingar
    Share 26 Tweet 16
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Salmonella í fæðubótarefni

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Laun seðlabankastjóra hækkuðu um 43% – Er með 43 milljónir á ár

    35 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Trúa á konum en ekki körlum – Sjálfsvíg karla

    18 deilingar
    Share 7 Tweet 5
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?