UPPFÆRSLA: LANDSPÍTALI HEFUR VERIÐ TEKINN AF GULU VIÐBÚNAÐARSTIGI VEGNA RÚTUSLYSS; ÁLAG ENN MIKIÐ
Landspítali hefur kl. 19:20 á fimmtudegi, 16. maí, verið tekinn af gulu viðbúnaðarstigi vegna rútuslyss sem varð fyrr í dag á Suðurlandsvegi, við Hofgarða, skammt norðan við Fagurhólsmýri.
Vegna mikils álags sem viðbúnaðarstig hefur í för með sér biður Landspítali fólk með minniháttar áverka eða veikindi þó áfram um sinn að leita frekar til heilsugæslu eða Læknavaktar frekar en bráðadeildar í Fossvogi ef kostur er. Þetta atvik kemur ofan í þunga stöðu og umtalsverðan flæðisvanda, sem Landspítali glímir við í augnablikinu. Vinsamlegast deilið.
Viðbragðsáætlun Landspítala:
https://www.landspitali.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=16691

Landspítali hefur verið settur á gult viðbúnaðarstig vegna rútuslyss í dag á Suðurlandsvegi, við Hofgarða, skammt norðan við Fagurhólsmýri.
Samkvæmt upplýsingum sem við höfum á þessum tímapunkti, kl. 17:10, eru 5 rauðmerktir og þar með alvarlega slasaðir af 33 sem voru í rútunni.
Viðkomandi eru nú á leið til Landspítala, en ekki er vitað með vissu hvenær eða hvernig viðkomandi koma til Landspítala, með sjúkrabifreið, sjúkraflugi eða þyrlu. Eftir því sem næst verður komist eru ýmist 28 grænir eða gulir samkvæmt viðbragðsáætlun, sem þýðir að viðkomandi eru lítið eða minna slasaðir og til frekara mats og skoðunar.
Vegna mikils álags sem viðbúnaðarstig hefur í för með sér biður Landspítali fólk með minniháttar áverka eða veikindi um að leita frekar til heilsugæslu eða Læknavaktar frekar en bráðadeildar í Fossvogi ef kostur er. Þetta atvik kemur ofan í þunga stöðu og þann mikla flæðisvanda, sem Landspítali glímir við í augnablikinu.
Viðbragðsáætlun Landspítala: https://www.landspitali.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=16691
Uppfært 19:07
Búið er að opna fyrir umferð um slysstað. Lögregla er enn að störfum á vettvangi og eru vegfarendur beðnir um að sýna aðgát og tillitssemi.
Uppfært kl 18:24
Búið er að opna fyrir umferð um slysstað. Lögregla er enn að störfum á vettvangi og eru vegfarendur beðnir um að sýna aðgát og tillitssemi.
Uppfært kl 18:24
Unnið er að því að koma öllum, slösuðum sem óslösuðum til skoðunar og aðhlynningar. Notast verður við sjúkraflugvél Mýflugs og flugvél Landhelgisgæslunnar. Einstaklingar verða fluttir á sjúkrahúsið á Akureyri og Heilbirgðisstofnunina á Selfossi. Vettvangur er enn lokaður fyrir umferð.
Uppfært kl 17:41
Verið er að flytja fjóra slasaða einstaklinga af vettvangi með þyrlu Landhelgisgæslunnar. Verið er að gera ráðstafanir varðandi flutning annarra slasaðra einstaklinga en ljóst er að nokkuð er um meiðsli. Lokun er enn í gildi á vettvangi og óljóst hvernær opnað verður fyrir umferð á nýjan leik. Lögregla vinnur að rannsókn á vettvangi.
Kukkan 15:05 bárust lögreglu upplýsingar um umferðarslys við Hof í Öræfum. Um er að ræða hópbifreið sem þar fór á hliðina. Staðfest er að í rútunni voru 32 farþegar auk ökumanns. Viðbragðsaðilar eru komnir á vettvang og er aðhlynning slasaðra hafin.
Suðurlandsvegur er lokaður við slysstað og ekki liggur fyrir hve lengi lokunin varir.
Frekari upplýsingar verða veittar þegar þær liggja fyrir.

Umræða