• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 23. janúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Meta ávinning af starfi VIRK á 21,3 milljarð

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
16. maí 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0

 

Ávinningur af starfsemi VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs á árinu 2020 var metinn á um 21,3 milljarða króna að því er fram kemur í frétt á vef sjóðsins. VIRK starfsendurhæfingarsjóður var stofnaður í kjölfar bankahrunsins haustið 2008 af aðilum vinnumarkaðarins, þar á meðal BSRB, í þeim tilgangi að standa fyrir starfsendurhæfingu í kjölfar hrunsins.

Talnakönnun hefur nú tekið saman skýrslu um starfsemi sjóðsins þar sem metið er hver ávinningur samfélagsins var af starfsemi VIRK á síðasta ári. Á sama tíma og ávinningur af starfseminni nam 21,3 milljörðum var rekstrarkostnaður sjóðsins um 3,5 milljarðar króna. Þetta eru sambærilegar tölur og á árinu þar á undan.

Í skýrslu Talnakönnunar var einnig reiknaður út ávinningur samfélagsins af virkni hvers einstaklings sem útskrifaðist úr starfsendurhæfingu á árinu 2020. Sá ávinningur nam um 13,3 milljónum króna að meðaltali á hvern einstakling.

Þetta er áttunda árið í röð sem Talnakönnun greinir árangurinn og ávinninginn af starfsemi VIRK. Eins og áður var unnið út frá mælikvarða á sparnað af starfsemi VIRK sem tók mið af raunverulegum árangri, árangri sem felst í að flýta endurhæfingu, stytta tímabil óvinnufærni einstaklinga og minnka tíðni örorku.

Á þeim átta árum sem Talnakönnun hefur reiknað út ávinninginn af starfsemi VIRK hefur hann numið alls 147,8 milljörðum á föstu verðlagi. Á sama tímabili hefur kostnaður við rekstur sjóðsins numið alls 23,8 milljörðum króna.

Sýnt er fram á í skýrslunni að ábatinn af starfsendurhæfingarþjónustu á vegum VIRK skilar sér til Tryggingastofnunar, lífeyrissjóða og ríkisins í formi aukinna skatttekna. Ofan á þetta kemur svo bættur hagur einstaklinga, bæði fjárhagslegur auk þeirra lífsgæða sem felast í því að geta tekið fullan þátt í samfélaginu, eins og fram kemur í frétt á vef sjóðsins.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Heiða Björg í leynihópi – „rústum þessum gaurum“

    Heiða Björg í leynihópi – „rústum þessum gaurum“

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • ,,Sólveig Anna flengdi Hallgrím Helgason á beran bossann“

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Aðgangi að samfélagsmiðlum á Íslandi jafnvel lokað

    32 deilingar
    Share 13 Tweet 8
  • Hreinsun og uppsagnir í Mennta- og barnamálaráðuneytinu

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Strandveiðar skaða ekki fiskistofna né lífríki sjávar

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?