• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 24. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Hættuleg fæðubótarefni

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
16. maí 2022
in Fréttir, Innlent, Neytendur
A A
0

Almenn viðvörun til neytenda – um váboð tilkynningar varðandi hættuleg fæðubótarefni

Ár eftir ár berast Matvælastofnun váboð tilkynningar (e. Rapid alert notifications) frá ýmsum erlendum viðvörunarkerfum. Hérlendis berast váboð tilkynningar varðandi fæðubótarefni í gegnum viðvörunarkerfi Lyfjastofnunar þrátt fyrir að það kerfi sé gert til að vakta váboð vegna lyfja. Í yfirferð Lyfjastofnunar kemur oft í ljós að um fæðubótarefni sé að ræða en ekki lyf. Oftast er um að ræða falin lyfjavirkt efni í vörum sem seljast sem fæðubótarefni. Þar sem þessum lyfjavirku efnum er ekki getið í innihaldslýsingu fæðubótarefnanna er neytandinn í hættu og því ber að varast þau.

Það sem af er ári hefur Matvælastofnun fengið 8 váboð í gegnum viðvörunarkerfi Lyfjastofnunar en þau sýna aðeins lítinn brot af tilkynntum vörum (sjá undir ítarefni). Vörurnar sem oftast koma við sögu eru markaðssettar sem kynörvandi fæðubótarefni eða sem lausn eða hjálp við ristruflunum (e. dietary supplements for male sexual enhancement) og fæðubótarefni fyrir þyngdartap (e. Dietary supplement for weight loss). Vörur eins og þessar eru yfirleitt einungis hægt að fá í netverslun eða á samfélagsmiðlum og oftast eru þær auglýstar sem náttúrulegar jurtavörur með „stórum loforðum“ um lausn á viðkomandi vandamáil. Efnagreining leiðir oft í ljós að virk lyfjaefni eru falin í fæðubótarefnum, þ.e. þeirra er ekki getið í innihaldslýsingu. Þegar upp kemst um svikin er varað við ólöglegri og hættulegri vöru t.d. í gegnum viðvörunarkerfi í hverju landi.

Oftast er um að ræða efnin tadalafil og sildenafil þegar vara er markaðssett sem kynörvandi fæðubótarefni eða sem lausn eða hjálp við ristruflun (e. dietary supplements for male sexual enhancement) en síbútramín, þegar vara er markaðssett sem hjálp við að léttast.

Tadalafil og sildenafil eru virk lyfjaefni í lyfseðilsskyldum lyfjum og eru ætluð til meðferðar við ristruflunum hjá fullorðnum karlmönnum. Lyfjaefni sem þessi ætti aldrei að nota nema í samráði við lækni þar sem þau geta verið skaðleg heilsu séu þau ekki notuð á réttan hátt. Síbútramín var virkt lyfjaefni í Reductil og öðrum lyfjum en efnið var afturkallað af markaði í Evrópu, Bandaríkjunum og víðar árið 2010 vegna alvarlegra aukaverkana, sem einkum tengdust hjarta- og æðakerfi. Síbútramín átti ekki að vera á markaði.

Vörur eða fæðubótarefni sem innihalda falin lyfjaefni teljast ekki bara ólögleg matvæli heldur geta þau verið hættuleg þeim sem neyta þeirra og eru ekki meðvitaður um efnin í matvælunum. Markaðssetning og innflutningur slíkra efna er með öllu óleyfilegur og þau ber að varast. Matvælastofnun hvetur neytendur til þess að vera á varðbergi gagnvart slíkum vörum, sem seldar eru á netinu eða á samfélagsmiðlum. Neytendum ættu að sýna aðgát áður en þeir kaupa vörur á netinu og vera ávallt vakandi fyrir því hvernig markaðssetningu er háttað. Athuga þarf hvort netverslun sé treystandi og vera gagnrýnin á vefverslun ef t.d. loforð  um kraftaverksárangur er of góður til að vera sannur eða ef aðeins er hægt að kaupa vöru í tiltekinni netverslun eða í takmarkaðan tíma.

Váboð tilkynningar til Matvælastofnunar frá janúar til mars 2022:

Notification date Dietary Supplements for Name of the product Undeclared substance More information
         
16.3.2022 Male sexual enhancement AVAPHINAL Maximum Male Enhancement sexual pills Sildenafil https://www.fda.gov/drugs/medication-health-fraud/public-notification-avaphinal-contains-hidden-drug-ingredient
18.2.2022 Weight loss 365 SKINNY High Intensity capsules Sibutramine  –
16.2.2022 Male sexual enhancement RISE UP Red Edition capsules Tadalafil https://www.fda.gov/safety/recalls-market-withdrawals-safety-alerts/positive-health-issues-voluntary-nationwide-recall-rise-red-edition-capsules-due-presence-undeclared
11.2.2022 Male sexual enhancement MAC DADDY RED and PURPLE Dietary supplements Sildenafil and/or Tadalafil https://www.fda.gov/safety/recalls-market-withdrawals-safety-alerts/abc-sales-1-inc-issues-voluntary-nationwide-recall-mac-daddy-red-and-mac-daddy-purple-capsules-due
10.2.2022 Male sexual enhancement RED MAMMOTH capsules Sildenafil and Tadalafil https://www.fda.gov/safety/recalls-market-withdrawals-safety-alerts/celebrate-today-issues-voluntary-nationwide-recall-one-lot-red-mammoth-due-presence-undeclared
9.2.2022 Male sexual enhancement MEGMAN Performance Booster capsules Tadalafil https://www.fda.gov/safety/recalls-market-withdrawals-safety-alerts/junp-llc-issues-voluntary-nationwide-recall-megman-performance-booster-capsules-due-presence
8.2.2022 Male sexual enhancement THE RED Pills Tadalafil https://www.fda.gov/safety/recalls-market-withdrawals-safety-alerts/your-favorite-shop-issues-voluntary-nationwide-recall-red-pill-capsules-due-presence-undeclared
10.2.2022 Male sexual enhancement HARD DAWN RISE and SHINE capsules Tadalafil https://www.fda.gov/safety/recalls-market-withdrawals-safety-alerts/esupplementsales-llc-issues-nationwide-recall-one-lot-hard-dawn-due-presence-undeclared-tadalafil

 

Ítarefni

  • Tainted Sexual Enhancement Products, FDA https://www.fda.gov/drugs/medication-health-fraud/tainted-sexual-enhancement-products
  • Tainted Weight Loss Products, FDA https://www.fda.gov/drugs/medication-health-fraud/tainted-weight-loss-products
  • List of illegal sibutramine-containing weight-loss products (Danish Medicines agency) https://laegemiddelstyrelsen.dk/en/pharmacies/medicines-imported-from-abroad/are-you-considering-buying-slimming-pills/list-of-illegal-sibutramine-containing-weight-loss-products/
  • List of illegal potency enhancers (Danish Medicines agency) https://laegemiddelstyrelsen.dk/en/pharmacies/medicines-imported-from-abroad/do-you-consider-buying-potency-enhancers/list-of-illegal-potency-enhancers/
Umræða
Share1Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Tveir eru látnir eftir bruna í fjölbýlishúsi

    17 deilingar
    Share 7 Tweet 4
  • Lögreglan leitar manns

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Verslanir sem ekki taka reiðufé sektaðar um 315 milljónir

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    158 deilingar
    Share 63 Tweet 40
  • Þorsteinn Már Baldvinsson hættir sem forstjóri Samherja

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?