Frétt Morgunblaðsins í dag um að leggja eigi Hólaskóla niður og færa hreyturnar undir Háskóla Íslands í Reykjavík er furðuleg og óskiljanleg. Horfa til sameiningar HÍ og Háskólans á Hólum
Ja „miklir menn erum við Hrólfur minn“.
Samstarf við H.Í hefur verið mikið og gott á undanförnum árum á hinu faglega sviði og báðir haft hag af.
En best hefur farið á að hver skóli fari með sína eigin stjórn og á heimavelli.
Ég var skólastjóri á Hólum í 20 ár og alltaf komu upp hugmyndir um utanfrá að leggja skólann niður og færa hann undir aðrar stofnanir.
Yfirleitt kom slíkt frá einstaklingum og ráðherrum sem þekktu ekkert til, báru litla virðingu fyrir sögu og menningu þjóðarinnar, höfða varla komið Heim að Hólum nema í mýflugumynd.
En sem betur fer voru til sterkt fólk og framsýnir aðilar sem stóðu með Hólum í Hjaltadal og tryggðu veg staðarins og virðingu sem og öflugs menntaseturs sem öll þjóðin gat verið stolt af.
Við gátum öll með stolti litið Heim að Hólum
Það er dapurlegt ef þetta verður minnisvarði ríkisstjórnar Katrinar Jakopsdóttur að leggja Hóla í Hjaltadal niður sem menntasetur og færa hreyturnar á mölina undir Háskóla Íslands í Reykjavík sem hingað til hefur átt nóg með sig sjálfan.
Þessar hugmyndir ber að afturtkalla þegar í stað og standa að baki Hólastaðar og Hólaskóla – Háskólans á Hólum af fullum metnaði