• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Miðvikudagur, 7. júní 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Sérfræðingahópur um mat á efnahagslegum áhrifum COVID-kreppunnar tekur til starfa

ritstjorn by ritstjorn
16. september 2020
in Fréttir, Innlent
0
Share on FacebookShare on Twitter

Heildarsamtök launafólks, ASÍ, BSRB og BHM, hafa skipað starfshóp sem falið er að leggja mat á efnahagsleg áhrif COVID-kreppunnar með áherslu á áhrifin á vinnumarkaðinn. Hópurinn mun gera tillögur um aðgerðir til að fyrirbyggja langtímaskaða af efnahagskreppunni og tryggja öfluga viðspyrnu þegar heimsfaraldurinn líður undir lok. Hópnum er ætlað að horfa sérstaklega til viðkvæmra og jaðarsettra hópa og fjalla um að hvaða leyti aðgerðir geta haft áhrif á jöfnuð og félagslegt réttlæti. Hópurinn tekur þegar til starfa. 
Í sérfræðingahópnum eiga sæti:
Halla Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri ASÍ, formaður
Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í viðskiptafræði og fulltrúi í fjármálaráði
Guðrún Johnsen, efnahagsráðgjafi VR
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, hagfræðingur BSRB
Sigrún Ólafsdóttir, prófessor í félagsfræði
Vilhjálmur Hilmarsson, hagfræðingur BHM
Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði
Ásgeir Sverrisson, sérfræðingur ASÍ, mun starfa með hópnum
Drífa Snædal, forseti ASÍ: „Á krepputímum eins og þessum eru teknar ákvarðanir í efnahagsmálum sem geta haft áhrif á samfélagið til langs tíma. Slíkar ákvarðanir verður að taka út frá almannahag, ekki sérhagsmunum. Hópurinn mun leggja mat á aðgerðir stjórnvalda og gera tillögur um leiðir til að tryggja að efnahagskreppan verði ekki dýpri og langvinnari en hún þarf að vera.“
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB: „Covid-19 hefur sýnt svart á hvítu fram á mikilvægi traustra opinberra innviða. Við vinnum okkur ekki út úr kreppunni með því að veikja innviðina, heldur þvert á móti með því að styrkja þá. Með því að greina áhrif kreppunnar og aðgerða gegn henni á jöfnuð og félagslegt réttlæti má koma í veg fyrir að teknar séu stefnumótandi ákvarðanir sem ýta undir ójöfnuð og skara eld að köku hinna fáu.“
Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM  „Stefnumótun um leiðir út úr kreppunni verður að byggja á traustum grunni. Með því að leiða saman sérþekkingu fræðafólks og reynslu og þekkingu úr starfi verkalýðshreyfingarinnar er hægt að stuðla að upplýstri ákvarðanatöku og veita stjórnvöldum virkt aðhald.“

  • ,,Ykkar verður minnst sem vesalinga sem nenntuð ekki eða þorðuð ekki“

    ,,Ykkar verður minnst sem vesalinga sem nenntuð ekki eða þorðuð ekki“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Árni Johnsen er látinn

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Líkfundurinn við Borgarnes

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Viltu fá útborgað í evrum?

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Vann 78 milljónir í Lottóinu

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?