• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 20. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Styrkja minnihlutavernd í veiðifélögum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
16. október 2019
in Afþreying, Innlent, Stangveiði, Veiði
A A
0

 
Styrking minnihlutaverndar í veiðifélögum, aðkoma Hafrannsóknastofnunar að gerð arðskráa og afnám milligöngu hins opinbera um greiðslu kostnaðar af arðskrármati eru áherslur í frumvarpi um breytingar á lögum um lax- og silungsveiði sem Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur lagt fram á Alþingi.
Í frumvarpinu er að finna tillögur að þremur meginbreytingum á núgildandi lögum:

  • Að minnihlutavernd í veiðifélögum verði styrkt með sérstökum reglum um atkvæðavægi á fundum. Breytingin hefur það í för með sér að enginn einn aðili geti drottnað yfir málefnum veiðifélaga. Með breytingunni verður hámark atkvæða sem sami aðili eða tengdir aðilar geta farið með á félagsfundi, í krafti eignarhalds, mest 30 prósent.
  • Að skipan arðskrárnefndar verði breytt. Lagt er til að Hafrannsóknarstofnun geri ábendingu um fulltrúa í nefndina í stað þess að óskað verði tilnefningu Hæstaréttar. Þetta er gert til að auka fiskfræðilega þekkingu á nefndinni og er í samræmi við ábendingar starfshóps um gerð arðskrá í veiðivötnum frá árinu 2015. Veiðifélögum er skylt að gera arðskrá, sem sýnir hluta af veiði eða arð af veiði sem koma skal í hlut fasteigna, lögaðila eða einstaklinga sem eiga veiðirétt í vatni á félagssvæði, en arðskrárnefndin sker úr um ágreining um arðskrá með matsgerð.
  • Að óþörf milliganga hins opinbera um greiðslu kostnaðar af arðskrármati verði felld niður. Með þessu er lagt til að veiðifélög greiði arðskrárnefnd beint fyrir vinnu sína í stað þess að atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið greiði fulltrúum í nefndinni og endurkrefji síðan veiðifélög.

Frumvarpið má finna hér

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    126 deilingar
    Share 50 Tweet 32
  • Sviku út 100 milljónir af fólki og fyrirtækjum

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Verslanir sem ekki taka reiðufé sektaðar um 315 milljónir

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Svartaþoka yfir miðborginni – Þykkur þokubakki við ströndina

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    138 deilingar
    Share 55 Tweet 35
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?