• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 15. nóvember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Reykjanesbraut lokað vegna malbiksframkvæmda

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
16. nóvember 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0

Lokað fyrir umferð frá Grindavíkurvegi í átt að Reykjavík. Hjáleið um Krýsuvíkurveg. Opið fyrir umferð í átt að flugstöðinni. Vegna malbikunarframkvæmda verður Reykjanesbraut lokuð fyrir umferð frá Grindavíkurvegi í átt að Reykjavík, að álverinu í Straumsvík, frá klukkan 20:00 miðvikudaginn 16. nóvember og til klukkan 20:00 fimmtudaginn 17. nóvember. Til stendur að malbika Reykjanesbraut á um 2,7 km kafla við álverið í Straumsvík.

Reykjanesbrautin verður opin fyrir umferð til Suðurnesja og á flugvöllinn allan framkvæmdatímann. Vegurinn verður lokaður við Grindavíkurveg, fyrir umferð í átt til Reykjavíkur en opið verður fyrir íbúa og þá sem eiga erindi í Voga og á Vatnsleysuströnd.

Hjáleið verður um Grindavíkurveg (43), Suðurstrandarveg (427) og Krýsuvíkurveg (42) fyrir þá sem eru á leið til höfuðborgarinnar. Sú leið er lengri og því þurfa ökumenn að gera ráð fyrir lengri ferðatíma. Einnig er bent á að umferðartafir gætu orðið nokkrar og ökumenn beðnir um að aka varlega og sýna tillitssemi.
Hraði á Krýsuvíkurvegi verður tekinn niður í 50 km/klst. á nokkrum stöðum auk þess sem hugað verður að aukinni vetrarþjónustu á veginum ef á þarf að halda.

Til stóð að malbika þennan kafla Reykjanesbrautarinnar sumarið 2023 en hjólför hafa myndast hraðar en ráð var fyrir gert og því talið nauðsynlegt að ráðast í þessar framkvæmdir fyrir veturinn til að gæta fyllsta öryggis vegfarenda. Dagsetning framkvæmdanna nú er valin vegna hagstæða veðurskilyrða í vikunni.
Björgunarsveitarfólk og starfsfólk Vegagerðarinnar verður við lokunarstöðvar og helstu gatnamót. Þetta er gert til að auka öryggi og til að bregðast við ef hleypa þarf í gegn viðbragðsaðilum í forgangsakstri. Lokun Reykjanesbrautarinnar eru unnin í góðri samvinnu við helstu hagaðila.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Niðurstaða um hvarf Geirfinns Einarssonar?

    ,,Morðinginn er enn á lífi og það er vitað hver hann er“

    57 deilingar
    Share 23 Tweet 14
  • Egill greiddi 17.776 krónur fyrir klukkustund í bílastæðagjald

    33 deilingar
    Share 13 Tweet 8
  • ,,Það er búið að ákveða ofurskatta á bílaumferð í borginni“ segir heimildarmaður í innsta hring

    17 deilingar
    Share 7 Tweet 4
  • Helgi Pétursson látinn

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • ,,Geirfinnur var myrtur í bílskúrnum heima hjá sér – Vitni horfði á drápið“

    229 deilingar
    Share 92 Tweet 57
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?